Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Óvíst hversu margir flugfarþegar hafa orðið fyrir áhrifum

Read Full Article →

Starfsmenn Úrvals Útsýnar aðstoðuðu viðskiptavini um helgina vegna ferðalaga til og frá Mið-Austurlöndum. Forstjórinn segir ekki hafa þurft að fella niður pakkaferðir. Fjölda flugvalla í Miðausturlöndum hefur verið lokað vegna stríðsins sem þar geisar. Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Úrvals Útsýnar, segir mikla vinnu hafa staðið yfir um helgina. Þó hafi ekki þurft að aflýsa pakkaferðum. „Við aðstoðum okkar farþega með ný flug í samráði við flugfélögin sem eru að fella niður flugin. Við erum ekki eingöngu að selja pakkaferðir heldur líka flug, fólk er að fara vítt og breitt þar sem þessar niðurfellingar á ferðum hafa áhrif. Þannig við erum bara til aðstoðar fyrir okkar farþega, eftir því sem fram vindur.“ Óvíst hversu margir viðskiptavinir verða fyrir áhrifum Þórunn segir flugfélögin vinna einn dag í einu í áætlanagerð og því sé erfitt að sjá hvaða áhrif stríðið hefur haft að svo stöddu. Þá sé óvíst hversu margir viðskiptavinir verði fyrir áhrifum. „Nei, ég er ekki með nákvæmar tölur. Við erum bara að vinna að þessu fyrir næstu daga og maður veit ekki hversu lengi þetta verður þannig að það er ekki komin nein nákvæm tala á það í augnablikinu. Því miður.“ Taka einn dag í einu Hún segir mestu óvissuna liggja í pakkaferðum sem farnar voru á föstudag til Óman og Dubai. Enn sé óvíst hvernig flugi þeirra farþega heim verði háttað. Hver eru næstu skref hjá ykkur? „Bara að taka hvern dag í einu. Það er bara þannig. Við ráðum voðalega lítið um þetta. Nema það að bara að vinna náið með flugfélögunum og okkar viðskiptavinum að þeim möguleikum sem bjóðast.“

Share this article