Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
LOW News Viðskiptablaðið

Gætu þurft að loka bandarískum flugvöllum

  • What: U.S. airports face potential shutdown due to TSA furloughs
  • Impact: Risk of reduced airport security and operational disruptions
Read Full Article →

Smærri flugvellir í Bandaríkjunum gætu þurft að hætta starfsemi tímabundið vegna fjárskorts ef lokun ríkisstofnana heldur áfram. Á vef Reuters er vitnað í háttsettan embættismann innan ríkisstjórnar Donalds Trumps. Helsta ástæðan er sögð vera mannekla á flugvöllunum en fleiri en 50 þúsund starfsmenn TSA hafa unnið launalaust undanfarinn mánuð. Samkvæmt upplýsingum frá bandaríska heimavarnarráðuneytinu (Department of Homeland Security) mældist fjarvistarhlutfall öryggisvarða 10,2% í gær. Á sumum stærri flugvöllum var staðan mun verri. Sjá einnig Flugfélögin kalla eftir tryggingu launagreiðslna Hátt í 30-39% starfsmanna mættu ekki til vinnu á JFK-flugvellinum í New York, Hartsfield-Jackson í Atlanta, í Houston og New Orleans. Flugvellir eru farnir að biðja um framlög frá almenningi í formi gjafakorta svo að starfsmenn TSA geti átt fyrir mat og eldsneyti. © Skjáskot (Skjáskot) Adam Stahl, starfandi aðstoðarforstjóri TSA, segir að ef ástandið héldi áfram óbreytt gæti þurft að loka smærri flugvöllum í landinu. Venjulegt fjarvistarhlutfall hjá TSA er undir 2% en aukin óvissa og launaleysi hefur haft veruleg áhrif. Hátt í 366 starfsmenn hafa nú þegar sagt upp störfum og segir Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, að flugvellir landsins væru komnir að þolmörkum.

Share this article