Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Reisa girðingu utan um Stuðla sem verða bara fyrir neyðarvistun og varðhald

Read Full Article →

Til stendur að reisa þriggja metra háa girðingu utan um meðferðarheimilið Stuðla og breyta húsinu töluvert. Þar verður einungis neyðarvistun, gæsluvarðhald og afplánun ungmenna. Stefnt er á að opna meðferðarheimili í Gunnarsholti á Suðurlandi á næstu vikum. Stuðlar verða eingöngu fyrir neyðarvistun og varðhald, eftir miklar breytingar á húsnæðinu. Há girðing verður reist utan um húsið. Miklar breytingar eru fyrirhugaðar á Stuðlum samkvæmt upplýsingum frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Ríflega milljarður fer í endurbætur á húsinu. Reist verður allt að þriggja metra há girðing utan um húsið og lóðinni skipt upp í skýrt afmörkuð útisvæði. Að loknum breytingum verður þar eingöngu neyðarvistun, afplánun og gæsluvarðhald fyrir 13-14 unglinga í einu. Þak hússins verður hækkað, gangar breikkaðir og húsið hólfað niður til þess að hægt verði að aðgreina börn betur. Áætluð verklok eru í enda þessa árs. Meðferðarheimili fyrir drengi í Gunnarsholti, sem beðið hefur verið eftir í meira en ár, ætti að vera tilbúið á næstu dögum. Í fréttum RÚV í febrúar 2025 sagði fulltrúi Barna- og fjölskyldustofu að styttist í að heimilið yrði opnað. Í september stóð til að framkvæmdum við Gunnarsholt yrði lokið um áramótin. Ráðast þurfti í miklar endurbætur á húsnæðinu, en framkvæmdir töfðust meðal annars eftir að asbest fannst í byggingunni. Lokaúttekt á húsnæðinu stendur yfir. Eftir það getur Barna- og fjölskyldustofa innréttað húsið. Og loks hillir undir að framkvæmdir geti hafist við byggingu meðferðarheimilis í Garðabæ, en skrifað var undir viljayfirlýsingu um það í lok árs 2018.

Share this article