Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: Verður tvöfalt Haukapartí Ásvöllum?

Read Full Article →

Í dag fara fram bikarúrslitaleikir karla og kvenna í handbolta. Leikið er á Ásvöllum og gæti sannkallað Haukapartí verið í vændum í Hafnarfirði. Þrátt fyrir að leikið sé á heimavelli Hauka verður miðasölunni auðvitað skipt jafnt. Fyrst mætast Valur og Haukar klukkan 15:30 í úrslitaleik kvenna. Leikurinn er í beinni útsendingu á RÚV. Karlamegin mætast svo Haukar og ÍR klukkan 18:30. Sá leikur er á RÚV2. Verja Haukar titilinn? Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar kvenna en Valur datt út í undanúrslitum í fyrra. Valur vann bikarinn síðast 2023 og hefur unnið titilinn níu sinnum, næstoftast allra. Valur vann 1988, 1993, 2000, 2012, 2013, 2014, 2019, 2022 og 2024. Haukar hafa orðið bikarmeistarar fimm sinnum. Var það árin 1997, 2000, 2006, 2007 og 2025. Mættust einnig síðast Karlamegin er ÍR komið í úrslit í fyrsta sinn frá 2014 en liðið tapaði einmitt gegn Haukum þá. Breiðholtsliðið hefur í tvígang orðið bikarmeistari, árin 2005 og 2013. Haukar fóru síðast í úrslit árið 2023 og töpuðu þar gegn Aftureldingu. Þeir hafa orðið bikarmeistarar sjö sinnum, næstoftast allra liða. Haukar lyftu bikarnum árið 1980, 1997, 2001, 2002, 2010, 2012 og 2014.

Share this article