„Fyrst var þetta bara sjokk, skilurðu? Var ég að greinast með berkla? Skilurðu? Já, ótrúlega skrítið, mikið sjokk,“ segir Atli Dagur Sigurðsson hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans. Sagt hefur verið frá berklasmiti meðal heilbrigðisstarfsfólks í fréttum síðustu vikur. Í upphafi mánaðarins var greint frá því að minnst átta starfsmenn á bráðamóttöku Landspítalans hefðu greinst með berkla. Atli var einn þeirra og hann ræddi þá reynslu í Kastljósi í vikunni. „Það verkefni vera með berkla sem eru einkennalausir, það er alveg hægt að díla við það. En eins og ég segi, það er aðallega þessi andlega hlið, að finnast ég ekki öruggur í vinnunni – það á ekki að vera þannig,“ segir hann. Þú getur horft á viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan.