- What: Brewing industry faces labor shortage due to automation
- Impact: labor market challenges in brewing sector
Tékknesk brugghús hafa í auknum mæli lent í vandræðum með að manna stöður til framleiðslunnar. Aukin sjálfvirknivæðing hefur breytt þörfum brugghúsa. Tékkar eru þekktir fyrir að vera mikil bjórþjóð. Kollan kostar víða minna en vatn og áratugum saman hafa þeir vermt efsta sætið á lista yfir þjóðir heims sem drekka mest af öli, að meðaltali hátt í 150 lítra á mann á ári. Brugghús landsins skipta hundruðum en tékkneska ríkisútvarpið greinir frá að í nýrri könnun meðal samtaka brugghúsa komi fram að erfiðara sé orðið að manna stöður til framleiðslunnar. Þó aðsókn í bruggnám hafi verið stöðug, þar sem á annað hundrað hefja nám á hverju ári, vantar helst sérhæft starfsfólk til að sinna vélbúnaði og viðhaldi. Þetta hefur ekki komið niður á framleiðslunni hingað til, en undirstrikar að það er ekki lengur nóg að vilja vera handverksbruggari og nostra með humla og ger, því aukin sjálfvirknivæðing hefur breytt þörfum framleiðslunnar. Það á við um fleiri atvinnugreinar þar sem aukin samkeppni er um tæknimenntað fólk til þess að halda öllu gangandi. Á sama tíma hefur alþjóðleg eftirspurn eftir framleiðslunni sjaldan verið meiri. Tékkar fluttu út ríflega sex hundruð milljónir lítra af bjór í hitteðfyrra - fjórum prósentustigum meira en árið áður.