Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lögregla finnur fólk löngu eftir að það deyr

Read Full Article →

Lögreglumenn í tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segja að árið 2025 hafi þeir komið að tíu manns sem höfðu verið látnir í langan tíma áður en þeir fundust. „Sem er óvenjumikið. Á meðalári eru þetta kannski þrír til fjórir einstaklingar,“ segir Ragnar Jónsson, lögreglufulltrúi í tæknideild lögreglunnar. Hann segir fólkið hafa dáið heima hjá sér og enginn hafi vitjað þess. „Og fyrir því geta legið margar ástæður. Það geta verið veikindi eða að einhver hreinlega kjósi það að eiga ekki neitt samneyti við aðra.“ Guðmundur Þ. Tómasson lögreglufulltrúi segir að málunum sé að fjölga. „Þegar það finnast líkamsleifar fólks sem er kannski ekki gott að bera kennsl á vegna þess að það er búið að liggja svo lengi, þá blasir við einhvers konar einangrun eða einmanaleiki, að fólk annað hvort fari lítið út eða sé í litlu sambandi við aðra,“ segir hann. Í þættinum Sögur úr raunveruleikanum á Rás 1 er fjallað um þessa birtingarmynd einsemdar. Tæknideild lögreglunnar kom í fyrra að tíu manns sem höfðu verið látnir í meira en viku þegar þeir fundust. Lögreglumenn telja það vísbendingu um að einstæðingum fjölgi. Þegar fólk deyr í heimahúsi eða einhvers staðar annars staðar en á sjúkrahúsi er tæknideild lögreglunnar yfirleitt kölluð til og hún kannar hvort andlátið hafi borið að með náttúrulegum hætti. Hún skoðar vettvanginn og hvort vísbendingar séu um að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað. Tæknideildin finnur sem betur fer sjaldan fólk sem hefur verið látið lengi og án afskipta annarra. Þeim Ragnari og Guðmundi ber saman um að það hafi breyst. Þeir telja sig koma að fleiri einstæðingum en áður. Fullt líkhús og ósótt duftker Í Fossvogi í Reykjavík er eins konar endastöð á ferðalagi margra um jarðneskt líf. Þar er líkhús, bálstofa, útfararstofa og kirkjugarður. Í þættinum Sögur úr raunveruleikanum er rætt við Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóra kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Ingvar tekur undir með lögreglumönnunum og segir að í líkhúsinu megi einnig sjá birtingamyndir einsemdar. Lík séu geymd lengur en áður í líkhúsinu og því sé það alla jafna yfirfullt. Í einstaka tilfellum kannist enginn við hin látnu sem hafi þá verið geymd þar í marga mánuði. „Við höfum alveg verið að upplifa það að það hafi verið lík hjá okkur ansi lengi, alveg upp undir eitt ár. Eins með kerin. Það eru hér duftker sem hafa verið hér í fjöldamörg ár. Þeim er svona frekar að fjölga, þeim kerjum sem eru ekki sótt eða jarðsett af aðstandendum.“

Share this article