Innlent | mbl | 22.4.2026 | 14:15 Alma vill endurskoða lög um tæknifrjóvgun Í ljósi réttinda þeirra sem getnir eru með gjafafrumum á að endurskoða lög um tæknifrjóvgun. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Heilbrigðisráðherra áformar að ráðast í heildarendurskoðun á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna. Áform um breytingarnar hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 22. maí. Þetta kemur fram í tilkynningu. Með frumvarpinu verða lagðar til ýmsar breytingar á lögununum í ljósi sjónarmiða um gæði og öryggi tæknifrjóvgunarþjónustu, jafnréttis, réttar þeirra barna sem getin eru með gjafafrumum til að þekkja uppruna sinn og einföldunar regluverks. Vegna smæðar íslensku þjóðarinnar Meðal fyrirhugaðra breytinga er ákvæði sem takmarkar notkun kynfrumna úr sama einstaklingi til að draga úr hættu á of nánum skyldleika. Vegna smæðar íslensku þjóðarinnar ætti að takmarka notkun kynfrumna úr sama einstaklingi við að úr verði börn í einungis einni fjölskyldu eða tveimur að hámarki. Þá á að endurskoða kröfu laganna um að sambúð eða hjúskapur sé skilyrði fyrir því að einstaklingar geti staðið saman að tæknifrjóvgun í þeim tilgangi að búa til barn með vísan til jafnréttis og til að koma til móts við breytta samfélagsgerð. Í ljósi réttinda þeirra sem getnir eru með gjafafrumum á að fá upplýsingar um líffræðilegan uppruna sinn á að endurskoða lög um tæknifrjóvgun, þar sem nafnlausar gjafir kynfrumna eru leyfilegar. Það er ekki síst mikilvægt í ljósi þess að sífellt fleiri erfðasjúkdómar hafa komið í ljós sem þörf er á að rekja. Leyfi til tæknifrjóvgunarþjónustu Þá eru önnur atriði sem þarfnast skoðunar og samráðs. Í því sambandi má nefna bann laganna við gjöf fósturvísa og veitingu leyfis til tæknifrjóvgunarþjónustu. Samkvæmt lögum um tæknifrjóvgun veitir heilbrigðisráðuneytið heilbrigðisstofnun leyfi til að framkvæma tæknifrjóvgun en almennt veitir embætti landlæknis leyfi til reksturs heilbrigðisþjónustu, sbr. 6. gr. laga um landlækni og lýðheilsu. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Yfirgefur Manchester-félagið Alma vill endurskoða lög um tæknifrjóvgun Bjóða upp á íslenskar kræsingar í Barselóna Þegar matur verður markaðstól: Snilld eða slys? Luigi skilur við tónlistina með stórtónleikum Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Dónaskapur og ruddaleg framkoma ógn við lýðræðið Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins „Af hverju fólk festist í afbrotum“ Þórdís þakkaði fyrir sig Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Leit hafin að nýju að ferðamanninum Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Náttúruvá í Norðlingaholti Hesthúsasvæði fer í biðstöðu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Nýjast á mbl.is » Yfirgefur Manchester-félagið Alma vill endurskoða lög um tæknifrjóvgun Bjóða upp á íslenskar kræsingar í Barselóna Þegar matur verður markaðstól: Snilld eða slys? Luigi skilur við tónlistina með stórtónleikum Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni „Á ekki að halda vöku fyrir fólki“ Borgin fór á mis við nokkra milljarða Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Leit hafin að nýju að ferðamanninum Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Náttúruvá í Norðlingaholti Hesthúsasvæði fer í biðstöðu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set