Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

SKE fagnar því að ráðuneytið bregðist loks við

Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.3.2026 | 14:35 SKE fagnar því að ráðuneytið bregðist loks við „Jafnframt mælist eftirlitið til þess að fjármögnunarmódel heilsugæslu og annað umhverfi rekstursins verði reglulega tekið til skoðunar með það í huga að tryggja jafna samkeppnisstöðu, að teknu tilliti til allra þátta,“ segir í tilkynningunni. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Samkeppniseftirlitið (SKE) fagnar breytingum sem heilbrigðisráðuneytið hyggst vinna að til að jafna samkeppnisstöðu einkarekinna heilsugæslustöðva gagnvart opinberum stöðvum. Í tilkynningu á vef SKE segir að breytingarnar komi í kjölfar ítrekaðra tilmæla stofnunarinnar um mikilvægi þess að gripið verði til aðgerða til að jafna starfsumhverfið. Fyrstu tilmælin voru send í október 2017 og hafði aðeins að takmörkuðu leyti verið brugðist við þeim. Hafði SKE þá fengið athugasemdir frá einkareknum heilsugæslustöðvum um samkeppnislega mismunun. Samkeppniseftirlitið segir ráðuneytið nú hafa gert grein fyrir eftirfarandi breytingum: Jafnt einingaverð frá 1. janúar 2026: Ráðuneytið tilkynnti að allar heilsugæslustöðvar myndu frá og með 1. janúar 2026 greiða sama einingaverð fyrir rannsóknarþjónustu Landspítalans. Með þessu er brugðist við áralöngu misræmi þar sem einkareknar stöðvar greiddu hærra verð en opinberar. Endurskipulagning miðlægrar þjónustu: Ráðuneytið vinnur að breytingum á miðlægri þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Þar á meðal eru: Stofnun Stafrænnar heilsu, nýrrar miðlægrar þróunar- og þjónustumiðstöðvar, flutningur geðþjónustu í fangelsum til Landspítala og endurmat á fyrirkomulagi og aðgengi að Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar. Eftirlit, kröfulýsingar og ný reglugerð: Unnið sé að nýrri reglugerð um heilsugæslu sem mun skýra kröfur til heilsugæslustöðva, óháð rekstrarformi. Þannig verði brugðist við ábendingum um að opinberar stöðvar hafi ekki sætt sambærilegu eftirliti og einkareknar. Jafnræði í sérnámi og skattaumhverfi til skoðunar: Ráðuneytið staðfestir að fjármögnun sérnámslækna sé nú dreift jafnt óháð rekstrarformi. Þá verði í samstarfi við Sjúkratryggingar Íslands og fjármálaráðuneytið skoðað hvort endurgreiðsla virðisaukaskatts geti verið útfærð með öðrum hætti til að tryggja meira hlutleysi í rekstri. Samkeppniseftirlitið hvetur ráðuneytið til þess að ljúka þessum verkefnum. „Jafnframt mælist eftirlitið til þess að fjármögnunarmódel heilsugæslu og annað umhverfi rekstursins verði reglulega tekið til skoðunar með það í huga að tryggja jafna samkeppnisstöðu, að teknu tilliti til allra þátta,“ segir enn fremur í tilkynningunni. Hver hafa tilmælin verið? Í tilmælunum sem SKE beindi til heilbrigðisráðherra árið 2017 kom eftirfarandi fram: Almenn skoðun fari fram á þeirri mismunandi aðstöðu sem annars vegar opinberar og hins vegar einkareknar heilsugæslustöðvar búa við. Heilbrigðisráðherra beiti sér m.a. fyrir því að mismunandi aðstaða opinberra og einkarekinna heilsugæslustöðva þegar kemur að sjúklingatryggingum verði skoðuð og að gripið verði til aðgerða til að jafna samkeppnisstöðu aðila að þessu leyti. Tryggt sé að Landspítali mismuni ekki viðskiptaaðilum við verðlagningu á rannsóknarþjónustu. Að skýr og afmarkaður rammi verði settur utan um samskipti og samninga milli Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og einkarekinna heilsugæslustöðva. Að skattaleg meðferð rekstrar annars vegar opinberra og hins vegar einkarekinna heilsugæslustöðva verði sem jöfnust. Í nóvember 2025 áréttaði Samkeppniseftirlitið tilmælin og taldi sérstaklega brýnt að jafna mismunun varðandi rannsóknarkostnað auk eftirfarandi: Mikilvægt er að heilbrigðisyfirvöld setji sérstök ákvæði um samkeppnislegt jafnræði í samningum sem gerðir eru vegna miðlægrar þjónustu og fylgist með að þeim sé fylgt eftir. Í dag er þessari þjónustu einkum sinnt af Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins, en það sama ætti við óháð því hver þjónustuveitandinn er. Sem dæmi er mikilvægt að miðlæg þjónusta beini ekki skjólstæðingum á aðrar stöðvar en þeir eru skráðir á nema sérstakar aðstæður mæli með því. Einkareknar heilsugæslustöðvar hafa bent á að opinberar heilsugæslustöðvar búi ekki við sambærilegt eftirlit og einkareknar stöðvar hvað varðar kröfulýsingar . Þannig hafi ákveðnar opinberar stöðvar ekki uppfyllt lágmarkskröfur um opnunartíma, mönnun og þjónustu. Ekkert eftirlit sé með því að opinberar heilsugæslustöðvar fylgi kröfulýsingum og engar afleiðingar fylgi því að þær séu brotnar. Mikilvægt er að einkareknar heilsugæslustöðvar njóti jafnræðis á við opinberar stöðvar þegar kemur að sérnámi í heimilislækningum . Samkvæmt kvartendum hefur ríkið kostað um 20 sérnámsstöður heimilislækna árlega, en einkareknar stöðvar ekki átt möguleika á að sækja um að nýta sér það. Mikilvægt er að tekið sé tillit til þess í kostnaðarlíkani heilsugæslustöðva að einkareknar heilsugæslustöðvar þurfa að greiða sérstakt iðgjald fyrir sjúklingatryggingar . Skoða mætti að haga endurgreiðslu vegna virðisaukaskatts með öðrum hætti en nú er til þess að auðvelda hverri rekstrareiningu að meta og ákveða hvaða verkefnum er útvistað og hverjum ekki, s.s. símsvörun, ræstingu, tölvukerfi o.s.frv. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vaka kynnir framboðslista sína Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Englendingarnir þreyttir á Elíasi Flags flown at half-mast abroad SKE fagnar því að ráðuneytið bregðist loks við Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Slæmt ástand grunn- og leikskólabygginga í borginni Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Yfir eitt þúsund árásir á dag Guðmundur Fertram kaupir sig inn í hótelrekstur Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Flytur mál fyrir Hæstarétti Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Quang Le fær ekki að opna bankareikning Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna Dæmdur í átta ára fangelsi Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Nýjast á mbl.is » Vaka kynnir framboðslista sína Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Englendingarnir þreyttir á Elíasi Flags flown at half-mast abroad SKE fagnar því að ráðuneytið bregðist loks við Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sætanýtingin skiptir mestu máli Lentu í vandræðum uppi á jökli Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Bandarískur hershöfðingi stjórnar rannsókninni Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Flytur mál fyrir Hæstarétti Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Quang Le fær ekki að opna bankareikning Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna Dæmdur í átta ára fangelsi Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu

Share this article