Valur Þráinsson, sem starfað hefur hjá Samkeppniseftirlitinu (SKE) frá árinu 2010 og verið aðalhagfræðingur stofnunarinnar frá 2018 hefur ákveðið að hætta störfum. Hann mun ekki hætta strax heldur ljúka ákveðnum verkefnum fyrst, sem og vera stofnuninni við þekkingaryfirfærslu. Samkeppniseftirlitið hefur auglýst eftir nýjum aðalhagfræðingi. Í tilkynningu þess efnis segir að aðalhagfræðingur beri faglega ábyrgð á hagrænum rannsóknum og greiningum á vettvangi Samkeppniseftirlitsins. Enn fremur sé aðalhagfræðingur SKE virkur þátttakandi í forgangsröðun verkefna, verkstjórn og ákvörðunum um efnislega niðurstöðu athugana. Jafnframt sé hann í samskiptum og samstarfi við fræðasamfélagið, innanlands og utan og taki þátt í alþjóðlegu samstarfi, m.a. á vettvangi EES/ESB, OECD og norrænna eftirlita.