Álfheiður Ágústsdóttir hefur starfað hjá Elkem í 20 ár og verið forstjóri frá 2020. Hún segir að sögulega hafi Íslands haft mjög skýrt samkeppnisforskot í stóriðju. Stöðug raforka, samkeppnishæft verð og öflug innviðaumgjörð hafi skapað aðlaðandi rekstrarumhverfi. Þetta hafi verið ein helsta ástæðan fyrir því að fyrirtæki á borð við Elkem hafi byggt upp starfsemi hérlendis, en fyrirtækið er með verksmiðju á Grundartanga. Þetta kemur fram í viðtali við Álfheiði, sem birtist í sérblaði Viðskiptablaðsins um Iðnþing , sem hefst á morgun. „Undanfarin tíu til fimmtán ár hefur þetta hins vegar verið að breytast,“ segir Álfheiður. „Samkeppnisstaða Íslands hefur smám saman veikst, bæði vegna þróunar á innlendum orkumarkaði og vegna hraðra breytinga í alþjóðlegu umhverfi, þar sem aðrar þjóðir hafa sett sér markvissa iðnaðarstefnu og boðið fram betri rekstrarforsendur. Í dag er ljóst að það forskot sem Ísland bjó áður yfir er að mestu horfið. Það þýðir þó ekki að Ísland sé óaðlaðandi — heldur að forsenda áframhaldandi uppbyggingar krefst skýrari stefnu, aukins fyrirsjáanleika og þess að jafna samkeppnisskilyrði við það sem helstu keppinautar bjóða. Með réttum skrefum getur landið endurheimt sterka stöðu sína sem tryggur og samkeppnishæfur áfangastaður fyrir orkufrekan, útflutningsdrifinn iðnað.“ Stóra spurningin Hvað þarf að breytast í regluog/ eða skattumhverfinu til að tryggja áframhaldandi starfsemi og fjárfestingu í stóriðju hérlendis? „Þetta er stóra spurningin í dag; hvernig ætlum við að tryggja samkeppnishæfni iðnaðar ekki bara á Íslandi heldur í allri Evrópu? Ég tel mikilvægast að aðilar horfist í augu við að samkeppnishæfnin er brostin og fyrir Ísland er staðan sú að við stöndum höllum fæti jafnvel gagnvart öðrum framleiðendum innan Evrópu.“ „Takast verður á við heildarraforkukostnað fyrirtækjanna og horfa verður þá til bæði orkuverðsins sem og flutningskostnaðar á orkunni," segir Álfheiður. „Það mikilvægasta sem þarf að gera í dag að mínu mati er að ná utan um heildræna mynd og stefnumörkun í þessum stóru áhrifaþáttum. Ef ekkert verður að gert og við höldum áfram á sömu braut munu fyrirtækin leggjast af á Íslandi hvert á fætur öðru.“ Viðtalið birtist í sérblaðinu Iðnþing 2026 . Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild hér .