Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Gætu þurft að undirbúa lokun Elkem á Grundartanga eftir þrjú ár

Read Full Article →

Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem Íslands, sagði á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins í dag að samkeppnishæfi Íslands hafi farið hrakandi síðustu ár. Ef ekkert breytist í rekstrarumhverfi félagsins gæti þurft að endurskoða starfsemi járnblendisins á Grundartanga, sem þó sé ein best rekna eining og flaggskip Elkem-samstæðunnar. „Staðan er þannig að við eigum þrjú ár eftir af raforkusamningum og ef ekkert breytist segir það sig sjálft að við þurfum að fara að undirbúa lokun. Það er verkefni sem ég vona að við þurfum ekki að standa frammi fyrir.“ Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, var með Álfheiði á sviðinu og var sleginn yfir fullyrðingu hennar. „Nú er ég kjaftstopp! Þegar Álfheiður setur málið í þetta samhengi, að hugsanlega muni fyrirtækið ekki lifa af næstu þrjú árin nema eitthvað breytist, þá er ekkert annað en að biðla til þess góða fólks sem hér er sem hefur oft og tíðum í hendi sé að skapa þau skilyrði sem fyrirtæki þurfi til að geta lifað og dafnað.“

Share this article