Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði samþykktur – varaformaðurinn leiðir listann

Read Full Article →

Félagar í Samfylkingunni Hafnarfirði samþykktu framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor á félagsfundi flokksins í dag. Varaformaður flokksins leiðir listann áfram. Samfylkingin í Hafnarfirði fékk 29 prósent atkvæða í síðustu sveitarstjórnarkosningunum 2022 og fékk fjóra bæjarfulltrúa kjörna. Guðmundur Árni Stefánsson, varafomaður Samfylkingarinnar, er oddviti flokksins í Hafnarfirði. Hann segir í tilkynningu frá flokknum að jafnaðarmenn eigi traustar rætur í bænum. „Þessi framboðslisti jafnaðarmanna undirstrikar breidd og kraft. Þar er að finna fólk með fjölbreyttan bakgrunn á öllum aldri; fólk með reynslu og þekkingu og einnig nýtt fólk, ekki síst úr röðum unga fólksins, sem getur og mun láta til sín taka. Framboðslistinn er sigurstranglegur og við erum bjartsýn og jákvæð fyrir framhaldinu.“ Listi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í næstu sveitarstjórnarkosningum: Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar. Hildur Rós Guðbjargardóttir, bæjarfulltrúi. Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi og varaþingmaður Samfylkingarinnar. Elín Anna Baldursdóttir, sálfræðingur. Stefán Már Gunnlaugsson, bæjarfulltrúi og prestur. Hekla Sóley Arnarsdóttir, þroskaþjálfi. Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson, félagsmálafulltrúi hjá verkalýðsfélaginu Hlíf. Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri í Skarðshlíðarskóla. Jón Grétar Þórsson, starfsmaður í félagsþjónustu. Auður Brynjólfsdóttir, stjórnmálafræðingur. Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits. Hrund Biering Valsdóttir, eftirlit og verkefnastýring á Verkfræðistofu Reykjavíkur. Árni Freyr Ársælsson, deildarstjóri hjá Rafal. Jóhanna Ósk Maríudóttir Nielsen, sálfræðingur. Sigurður Þórður Ragnarsson, jarðvísindamaður. Gundega Jaunlinina, varaformaður verkalýðsfélagsins Hlífar. Valdimar Aðalsteinsson, háskólanemi. Sonja Magnúsdóttir, eigandi Fitnesssport. Ragnar Már Jónsson, saxafónleikari og tónlistarkennari. Sigrid Foss, eftirlaunaþegi. Tryggvi Rafnsson, leikari og verkefnastjóri. Valgerður M. Guðmundsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi.

Share this article