Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bæjarstjórinn leiðir Framsókn í Hafnarfirði

Read Full Article →

Valdimar Víðisson bæjarstjóri leiðir lista Framsóknarflokksins í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista flokksins hlaut samþykki á félagsfundi í gær. Annað sæti listans skipar Kolbrún Magnúsdóttir mannauðsráðgjafi. Í þriðja sæti er Árni Rúnar Árnason tæknistjóri en í því fjórða er Jóhanna Erla Guðjónsdóttir. Guðmundur Fylkisson lögreglumaður er í fimmta sæti listans. Tilbúin til áframhaldandi forystu í Hafnarfirði Valdimar Víðisson, oddviti og bæjarstjóri, segir flokkinn tilbúinn til áframhaldandi forystu í Hafnarfirði. Hann býður fólk sem tekið hefur þátt í starfi annarra flokka en ákveðið hefur að ganga til liðs við Framsókn sérstaklega velkomið. „Á listanum eru einstaklingar með mikla reynslu af pólitísku starfi og samfélagsmálum en líka ný andlit sem koma inn með ferska sýn, kraft og nýjar hugmyndir. Þessi blanda skiptir máli,“ segir Valdimar. Framsóknarflokkurinn hlaut um 13% atkvæða og tvo fulltrúa í síðustu bæjarstjórnarkosningum. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin hlutu stærstan hluta atkvæða og fengu hvor um sig fjóra fulltrúa inn í bæjarstjórn.

Share this article