Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Nýr oddviti Framsóknar í Fjarðabyggð

Read Full Article →

Framsóknarflokkurinn í Fjarðabyggð samþykkti framboðslista sinn fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor á félagsfundi í gærkvöld. Breytingar verða á toppi listans. Jón Björn Hákonarson, oddviti flokksins í síðustu kosningum og forseti bæjarstjórnar, gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Hann skipar heiðurssæti listans, það átjánda. Þuríður Lillý Sigurðardóttir, bóndi og bæjarfulltrúi, er nýr oddviti Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð. Næstur á lista eru Birgir Jónsson, skólameistari og bæjarfulltrúi, og Helga Rakel Arnardóttir, skrifstofustjóri og sjúkraflutningamaður. Framsóknarflokkurinn fékk þrjá bæjarfulltrúa í síðustu kosningum og myndar meirihluta í bæjarstjórn ásamt Sjálfstæðisflokknum.

Share this article