Hlynur Bæringsson, varabæjarfulltrúi og rekstrarstjóri, verður oddviti Framsóknarflokksins í Garðabæ í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Framboðslisti flokksins var birtur í dag. Í fréttatilkynningu frá Framsóknarfélagi Garðabæjar kemur fram að tillaga uppstillinganefndar Framsóknar að framboðslista hafi verið samþykkt einróma á fjölmennum félagsfundi á kaffihúsinu Dæinn í Urriðaholti í dag. „ Ég er afar þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt og er fullur tilhlökkunar að leiða þennan öfluga og samstillta hóp í kosningunum sem fram undan eru,“ er haft eftir Hlyni í tilkynningu. Framboðslisti Framsóknar í Garðabæ í heild sinni: 1. Hlynur Bæringsson, varabæjarfulltrúi og rekstrarstjóri 2. Anna Margrét Steingrímsdóttir, markaðs- og þjónustustjóri. 3. Einar Þór Einarsson, framkvæmdastjóri 4. Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri 5. Inga Amal Hasan, lögfræðingur 6. Sigurður J. Ólafsson, framkvæmdastjóri. 7. Hjördís Guðný Guðmundsdóttir, kennari og deildarstjóri 8. Vilhjálmur Halldórsson, rekstrarstjóri og yfirþjálfari 9. Tinna Hemstock, kaupmaður í Garðabæ 10. Markús Pálsson, húsgagnasmiður 11. Elín Jóhannsdóttir, þjónustustjóri 12. Alexander Olsen, lögfræðinemi 13. Bryndís Sveinsdóttir, sálfræðingur 14. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur og fv. bæjarfulltrúi 15. Hera Björk Guðmundsdóttir, nemi í FG 16. Anna Gréta Hafsteinsdóttir, viðskiptafræðingur og markaðsstjóri 17. Ómar Örn Sævarsson, framkvæmdastjóri 18. Anna Lena Halldórsdóttir, grunnskólakennari 19. Stefanía Ólöf Reynisdóttir, leikskólakennari 20. Tara Sól Guðmundsdóttir, háskólanemi 21. Ólöf Sigurbjörg Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri og fv. skólastjóri 22. Úlfar Ármannsson, framkvæmdastjóri