Brynja Dan Gunnarsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Garðabæ, hefur sagt sig úr flokknum eftir að ljóst varð að hún fengi ekki oddvitasætið fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún sakar uppstillinganefnd um klíkuskap og ófagleg vinnubrögð. „Það var umsóknarfrestur til 1. febrúar og ég sendi inn í aðdragandanum að ég hefði áhuga á því að leiða listann áfram. Við náðum síðast inn manni í bæjarstjórn eftir 12 ára hlé, þannig það var svona ánægjulegt og við unnum góða vinnu í Garðabænum. Það hafa engir skandalar átt sér stað eða neitt slíkt, þetta einhvern veginn kom flatt upp á mig,“ segir Brynja í samtali við fréttastofu. Framboðslisti Framsóknar í Garðabæ var kynntur í dag og er nafn Brynju er þar hvergi að finna. Hlynur Bæringsson, varabæjarfulltrúi og fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta, verður oddviti flokksins í sveitarfélaginu. Tilkynnt um oddvitaskiptin í símtali Brynja segist hafa fengið að vita af ákvörðun uppstillinganefndar um að hún yrði ekki oddviti í lok síðustu viku. „Það er uppstillinganefnd og Sigurjón Jónsson, sem er nýkjörinn framkvæmdastjóri flokksins og situr í henni, og er kannski óhæfur í það hlutverk að svo stöddu. Ég fæ þessar upplýsingar þar í símanum. Og einhvern veginn hafði enginn haft samband í millitíðinni, eins og uppstillinganefnd leggur í vana sinn að gera.“ Brynja segir að þrátt fyrir að fréttirnar hafi komið á óvart hafi hana grunað í einhvern tíma að eitthvað skrýtið væri í gangi. „Það hefur ótrúlega lítið samtal átt sér stað, eiginlega bara ekkert. Og það eru skrýtin vinnubrögð hjá uppstillinganefnd. Nú hef ég áður farið fyrir uppstillinganefnd og það voru alls konar viðtöl, samtöl og fundir sem áttu sér stað þar. Þannig að þetta var bara eitt símtal,“ segir Brynja, og heldur áfram. „Þannig að mig grunar að það hafi verið löngu búið að ákveða þetta og lofa einhverju einhvers staðar.“ Þá hafi hún ekki hugmynd um á hverju þessi ákvörðun uppstillinganefndar byggist. „Það er bara einhvers konar klíka held ég.“ Sakar uppstillinganefnd um óvönduð og ófagleg vinnubrögð Brynja segir bæjarstjórnarstörfin hafa verið mikinn skóla. Þrátt fyrir að róðurinn hafi verið þungur oft og tíðum hafi síðustu fjögur ár verið gefandi. „En auðvitað getur maður alltaf gert betur og ég er ekkert yfir þá gagnrýni hafin. Ég hef sinnt minni vinnu af alúð og það hefur verið ótrúlega gefandi og gaman að vinna fyrir sveitarfélagið mitt. En það hefur ekkert átt sér stað sem er „konkret“ skýring á því að víkja sitjandi oddvita úr sæti.“ Brynja segist velta fyrir sér hvort þau gildi sem hún hafi staðið fyrir eigi mögulega ekki lengur hljómgrunn hjá flokknum. Því hafi hún ákveðið að taka ekki sæti á lista Framsóknar né styðja flokkinn í aðdraganda kosninga. „Ég er búin að senda póst á Framsókn þess eðlis að ég vilji segja mig úr flokknum. Ég mun klára tímabilið sem óháður fulltrúi. Ég kann ofsalega illa að meta svona óvönduð og ófagleg vinnubrögð og get ekki beygt mig undir það.“ Hún segist óviss um hvað taki við þegar bæjarstjórnarsetu ljúki í vor. Hún sé þó ekki búin að útiloka að halda áfram í stjórnmálum. „Mér finnst erfitt að segja skilið við pólitík. Það blundar alltaf í mér. En í bili allavega held ég að að ég leyfi mér aðeins að anda og melta og vera og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.“