Það var svo sannarlega gleðileg frétt sem blasti við á forsíðu Morgunblaðsins á þriðjudag. Þar sagði frá því að vestfirski sárabindaframleiðandinn Kerecis myndi greiða, í formi eingreiðslu, 40 milljarða króna í skatt í ríkissjóð Íslands vegna kaupa danska móðurfélagsins Coloplast á hugverkaréttindum úr dótturfélaginu. *** Morgunblaðið hefur eftir Guðmundi Fertram Sigurjónssyni, stofnanda Kerecis og nú framkvæmdastjóra hjá Coloplast, sem staðfestir þetta í samtali við blaðið og segir þessa ráðstöfun til marks um þá gríðarlegu verðmætasköpun sem átt hafi sér stað á Vestfjörðum á umliðnum árum. Morgunblaðið hefur eftir Guðmundi Fertram Sigurjónssyni, stofnanda Kerecis og nú framkvæmdastjóra hjá Coloplast, sem staðfestir þetta í samtali við blaðið og segir þessa ráðstöfun til marks um þá gríðarlegu verðmætasköpun sem átt hafi sér stað á Vestfjörðum á umliðnum árum. Týr tekur undir það og telur í raun og veru ótrúlegt að öll þessi verðmæta- og nýsköpun hafi átt sér stað án þess að nein sérfræðinefnd á vegum Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um mótun atvinnustefnu hafi komið að málum. Það skyldi þó ekki vera að slíkar nefndir þurfi hreint ekki og að ríkið eigi bara að einbeita sér að því að skapa nýsköpun og atvinnulífinu í heild hagfellt rekstrarumhverfi? *** Þetta þýðir að miðað við forsendur fjárlaga ársins ætti ríkissjóður að vera rekinn með tólf milljarða króna afgangi í ár. Týr getur vart beðið eftir að ráðherrar ríkisstjórnarinnar og stjórnarþingmenn fari að stæra sig af því að hafa „lagað ríkisfjármálin“. Þeir eru reyndar nú þegar byrjaðir á því. En þetta er eingreiðsla og ekkert hefur verið lagað. Týr minnir á að verulega hefur dregið úr slagkrafti hagkerfisins og allar líkur eru á að forsendur fjárlaganna um skattheimtu séu of bjartsýnar. Á sama tíma fer atvinnuleysi vaxandi og ljóst er að á gjaldahliðinni verða útgjöld, til dæmis vegna atvinnuleysisbóta, hærri en reiknað var með. Týr telur að þrátt fyrir eingreiðsluna frá Kerecis séu áskoranirnar eftir sem áður miklar og að öllu óbreyttu sé ákaflega ólíklegt að ríkissjóður verði rekinn hallalaus á næsta ári, eins og ríkisstjórnin stærir sig svo ákaflega af að ætla að gera. Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðið. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 26. nóvember 2026.