Kerecis á Ísafirði greiðir í haust 40 milljarða króna í skatt vegna sölu á hugverkaréttindum til danska fyrirtækisins Coloplast. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, fór yfir viðskiptin í Kastljósi. Hann segir að þrátt fyrir söluna haldist starfsemin á Íslandi óbreytt og sé jafnvel að styrkjast. Verið sé að byggja nýja framleiðsluaðstöðu á Ísafirði, sem muni leiða til frekari fjölgunar starfa og að fyrirtækið vinni að þróun nýrra lækningavara úr fiskroði. Snýr stöðu ríkissjóðs við Athygli vakti að fyrirtækið greiðir skattinn í eingreiðslu í stað þess að dreifa henni yfir allt að sjö ár, eins og er heimilt. Fyrir vikið verður fjárlagagati næsta árs lokað og ríkissjóður rekinn með afgangi. Guðmundur segir ánægjulegt að geta lagt sitt af mörkum en að ákvörðun um eingreiðsluna hafi verið tekin með hliðsjón af því að gengi krónunnar hafi verið óstöðugt í gegnum tíðina. „Ég geri ráð fyrir að móðurfyrirtækinu hafi fundist óþægilegt að vera með einhvers konar gengisáhættu og þess vegna viljað gera þetta í einum hnykk. “ Að hans mati ætti fjármununum einkum að vera varið í verkefni sem styrkja efnahagslegan vöxt, þar á meðal innviðauppbyggingu á Vestfjörðum þar sem samgöngur séu enn veikur hlekkur. „Við höfum verið að margfalda efnahagsleg umsvif á Vestfjörðum og skattfótsporið hefur tvö- til þrefaldast á einum áratug. Ef við viljum halda áfram svo að þetta skattfótspor vaxi þá þurfum við að hlúa að Vestfjörðum.“ Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, segir starfsemi fyrirtækisins á Íslandi halda áfram að vaxa þrátt fyrir sölu hugverkaréttinda. Óstöðugt gengi krónunnar hafi ráðið mestu um að 40 milljarða króna skattur verði greiddur í einu lagi. Söluhagnaður rennur í meiri nýsköpun Saga Kerecis nær aftur til ársins 2007. Guðmundur segir hvergi betra að stunda nýsköpun en á Íslandi, en mikilvægt sé að hlúa að stuðningskerfi sprotakerfa, sem sé í ákveðinni vörn nú um mundir. „Það er ótrúlega mikið af spennandi verkefnum, bæði á Vestfjörðum og um land allt. Það er gaman að sjá að þessir 180 milljarðar, sem renna til hluthafa í Kerecis, stór hluti af þeim er að finna sér farveg í nýjum sams konar verkefnum. Þannig það er auðveldara að fjármagna nýsköpunarfyrirtæki á Íslandi í dag út af velgengni Kerecis, en í mörgum öðrum löndum.“ Horfa má á viðtalið við Guðmund Fertram í spilaranum hér að ofan.