Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Indriði og skattaundanskotin

Read Full Article →

Hrafnarnir hafa velt fyrir sér hvernig Íslendingar hafa farið að því að skapa jafn mikil útflutningsverðmæti og raun ber vitni þrátt fyrir kennivald manna eins og Indriða G. Þorlákssonar, fyrrverandi ríkisskattstjóra. Skemmst er að minnast þess þegar Indriði steig fram í vetur og lýsti því yfir að bilunin í álverinu á Grundartanga hefði engin efnahagsleg áhrif hér á landi, þrátt fyrir að rekstur þess skili tugum milljarða í útflutningsverðmæti. Hrafnarnir sjá að Indriði er aftur kominn á kreik og skrifar nú um hina miklu ósvinnu sem felst í fjörutíu milljarða skattgreiðslu Kerecis í ríkissjóð vegna sölu á hugverkaréttum til móðurfélagsins Coloplast. Greinin ­birtist í Heimildinni, sem er uppáhalds­fjölmiðill Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkis­ráðherra og Dags B. Eggerts­sonar, stuðningsfulltrúa Samfylkingarinnar, ef marka má umræður í þinginu að undanförnu. En Indriði reynir í grein sinni að færa rök fyrir þeirri skoðun að þessi fjörutíu milljarða skattgreiðsla Kerecis í ríkissjóð sé í raun skattasniðganga. Þá er spurning hvort aðrir bjóði betur, og horfa hrafnarnir fyrst og fremst til Þrastar Ólafssonar og Þórólfs Matthíassonar í þeim efnum. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu sem kom út 18. mars 2026.

Share this article