Innlent | Morgunblaðið | 6.5.2026 | 13:00 Rannís er meðvitað um bagalega stöðu Kerecis hefur notið góðs af skattfrádrætti undanfarin ár. Ljósmynd/Kerecis Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tafir á afgreiðslu umsókna um skattfrádrátt vegna rannsóknar- og þróunarverkefna hafa valdið fyrirtækjum verulegum óþægindum undanfarið. Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Íslands (Rannís), segir stofnunina hafa verið komna verulega eftir á en nú sé unnið markvisst að því að bæta stöðuna. Spurður um stöðu fyrirtækja sem standa höllum fæti vegna þess að endurgreiðslur hafa ekki verið afgreiddar segir Ágúst að Rannís geri sér fulla grein fyrir bagalegri stöðu þeirra sem hafa beðið eftir niðurstöðum. „Við hörmum mjög þennan drátt en fyrirtæki geta ekki gengið út frá því að fá endurgreiðslu,“ segir hann. Ágúst undirstrikar að verkefni sem talin eru standast skilyrði staðfestingar sem rannsóknar- eða þróunarverkefni lögum samkvæmt geti fengið endurgreiðslu á þeim kostnaði sem lagður hefur verið út. Leggur hann þá sérstaka áherslu á að um endurgreiðslu eða skattfrádrátt sé að ræða en ekki styrk eins og oft sé ranglega haldið fram. Hann segir að úrræðið taki til rannsóknar- og þróunarverkefna en sé ekki eingöngu stuðningur við nýsköpun. Bæði rótgróin fyrirtæki og nýsköpunarfyrirtæki geti sótt um endurgreiðslu svo lengi sem það sé vegna verkefna sem uppfylla skilyrðin. Um ástæður tafa á endurgreiðslum segir Ágúst umsóknum hafa fjölgað verulega á sama tíma og rannsóknar- og þróunarþáttur þeirra sé oftar óljós en áður. „Við höfum þurft að senda fleiri fyrirspurnir og kalla oftar eftir gögnum. Svör hafa stundum borist seint og ekki alltaf verið nægilega skýr. Samhliða því hefur eftirlit verið aukið en Rannís hefur síðustu ár farið í fleiri heimsóknir til fyrirtækja og átt ítarlegri samskipti við umsækjendur.“ Fleiri umsóknum hafnað Þessi auknu samskipti eru nauðsynleg að sögn Ágústs til að tryggja réttmæta afgreiðslu en hafa þó tafið ferlið. Hann segir að breytingar á lagaramma hafi leitt til þess að fleiri umsóknum sé hafnað en áður, sérstaklega þegar verkefni eru talin hafa færst úr rannsóknar- og þróunarstarfi yfir í hefðbundinn rekstur. Rannís hefur brugðist við stöðunni með því að fjölga starfsfólki, breyta vinnulagi og forgangsröðun. Markmiðið er að allir umsækjendur fái í síðasta lagi svör fyrir lok maí og vilji stendur til að óvissu verði alfarið eytt fyrir sumarið. Fyrirtæki viti fyrir mitt ár hvort þau eigi von á endurgreiðslu. Endurgreiðslurnar tengjast rekstrarári og koma til greiðslu við álagningu skatta í október árið eftir. Því hafa fyrirtæki í raun ekki misst af greiðslum þrátt fyrir tafir. Ágúst hvetur forsvarsmenn þeirra til að bregðast hratt við fyrirspurnum frá stofnuninni. Hann segir að skjót og skýr svör geti flýtt verulega fyrir afgreiðslu. Endurgreiðsluúrræðið er eitt það mikilvægasta fyrir íslensk fyrirtæki að mati Ágústs þrátt fyrir þær áskoranir sem Rannís hefur þurft að glíma við í tengslum við ferlið. Á rekstrarárinu 2024 námu endurgreiðslur þessar vegna rannsóknar- og þróunarverkefna um 13 milljörðum króna. Til samanburðar úthlutar Tækniþróunarsjóður, sem Rannís sér einnig um, tæplega þremur milljörðum króna á ári en samþykktarhlutfall umsókna er um 14%. „Þetta er langstærsta stuðningsúrræðið við rannsóknir og þróun hjá fyrirtækjum,“ segir Ágúst. Fram undan eru mögulegar breytingar á umsóknarferlinu. Unnið er að því í samvinnu ráðuneyta að einfalda umsóknarform og matsferli, að því er Ágúst greinir frá, en hann segir þó ekkert hafa verið ákveðið enn. Á sama tíma bendir hann á að til greina komi að opna fyrr fyrir umsóknir eða gera sérstakar ráðstafanir vegna stöðunnar. „Það er mikill vilji til að einfalda þetta og hraða afgreiðslu.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fullyrða að Slot verði áfram Accuses Social Democrats of running city preschools aground Geta tekið gleði sína á ný eftir 25 ár Rannís er meðvitað um bagalega stöðu Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu Mistök en gagnrýnin stendur Áfram él norðan- og austanlands „Fyrst og fremst gert fyrir þjóðina“ Mest lesið Í gær Í vikunni Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Hafnarstjóri: Vá þarf að vera fyrir hendi Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Myndir: Fjórtándu fjáröfluninni hleypt af stað Auglýsa Pizza 67 til sölu Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Nýjast á mbl.is » Fullyrða að Slot verði áfram Accuses Social Democrats of running city preschools aground Geta tekið gleði sína á ný eftir 25 ár Rannís er meðvitað um bagalega stöðu Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafnarstjóri: Vá þarf að vera fyrir hendi Óháð úttekt á fréttamennsku RÚV Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Mest lesið Í gær Í vikunni Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Hafnarstjóri: Vá þarf að vera fyrir hendi Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Myndir: Fjórtándu fjáröfluninni hleypt af stað Auglýsa Pizza 67 til sölu Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda