Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aukið aðhald óháð Kerecis

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 28.2.2026 | 22:50 Aukið aðhald óháð Kerecis Daði Már heldur áfram þétt um svipuna þrátt fyrir búhnykk. mbl.is/Eyþór Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Einskiptisskattgreiðsla Kerecis vegna sölu á hugverkarétti verður ekki til þess að slakað verði á aðhaldi ríkissjóðs að sögn Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra, en hann ræddi við blaðamann að loknum fundi ríkisstjórnar í gær. Eins og Morgunblaðið sagði frá á dögunum nemur skattgreiðsla Kerecis 40 milljörðum króna og skilar hún sér í ríkiskassann síðar á árinu. Daði Már boðaði í samtali við Morgunblaðið í síðasta mánuði aukið aðhald ríkisfjármála að óbreyttu vegna þrálátrar verðbólgu og hárra verðbólguvæntinga. Áður hafði hann boðað hallalaus fjárlög árið 2027 og gerir núgildandi fjármálaáætlun ráð fyrir 2 milljarða króna afgangi það ár, en í viðtalinu sagði hann að aðstæður nú kölluðu á meiri afgang en áætlanir gera ráð fyrir. Með öðrum orðum: Aukið aðhald. Fjárlög ársins 2026 gera ráð fyrir um 30 milljarða halla á þessu ári en að óbreyttu mun greiðsla Kerecis ýta rekstri ríkissjóðs yfir núllið þegar á þessu ári. Blaðamanni lék því forvitni á að vita hvort hinn óvænti búhnykkur hefði áhrif á fyrirætlanir ráðherrans um aukið aðhald. „Verðbólga er rýrnun á verðgildi peninga og hún gerist vegna þess að það eru of margir peningar að elta of fáar vörur. Óvæntur einskiptisábati sem breytir afkomu ríkisins breytir því ekki aðhaldsstigi ríkisfjármála,“ segir Daði Már. Hann segir fjárhæðina verða nýtta til að greiða niður „yfirdráttinn“, honum verði ekki spreðað í aukin útgjöld. Sendir tóninn Grein Daða Más, Agi og festa, sem birtist í Morgunblaðinu á fimmtudag sl. vakti nokkra athygli. Þar skrifar hann m.a.: „Það hefur því miður verið plagsiður um áratugaskeið að fjárlög og á síðari árum fjármálaáætlun hafa ekki verið nægilega raunsæ og/eða virt sem skyldi. Um of hefur verið treyst á að fjárheimildir fáist örugglega þrátt fyrir að áætlanir standist ekki eða að meiru sé eytt en fjárlögin leyfa. Þessu vinnulagi verður að breyta.“ Greininni lýkur hann á orðunum: „Við verðum einfaldlega að gera ríkisfjármálin sjálfbær og sníða okkur stakk eftir vexti á öllum sviðum. Ég er sannfærður um að það er eina skynsamlega leiðin sem okkur er fær.“ Spurður hvort með greininni sé hann ekki síður að senda samráðherrum sínum og þingheimi tóninn en almenningi segir Daði Már: „Það er mjög góð samstaða innan ríkisstjórnarinnar um mikilvægi þess að ná niður verðbólgu. Það er hins vegar alltaf hætta, og þið getið rætt við alla þá fjölmörgu fjármálaráðherra sem á undan mér hafa gengið og eru til viðtals um þetta, að það sé visst samhæfingarvandamál við ákvarðanir um ríkisútgjöld. Þegar þú tekur hvert mál fyrir sig er hvert og eitt ákaflega skynsamlegt og gott og virðist augljóst að það eigi fjármagna það. Saman búa þessi mál til vandamál í rekstri ríkisins og aðhaldi hins opinbera. Þetta er vandamálið við það að taka pólitískar ákvarðanir um fjárútlát. Enginn vill segja nei, því það er drullufúlt að segja nei. En það verður að segja nei. Þetta er vísa sem verður ekki of oft kveðin og ég hygg að ef þú ferð yfir talsmáta fyrirrennara minna, allflestra, þá finnur þú svipaðan tón.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Aukið aðhald óháð Kerecis Hvað gerðist í Íran í dag? Íslamska lýðveldið muni berjast til síðasta blóðdropa Ósáttir með baul stuðningsmanna Myndir: Fallinna minnst í fjögurra ára stríði Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Nýlegar umferðarspár – Samanburður við eldri spár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni 21 milljarðs gjaldþrot Play Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Myndir: „Jaðrar við ofbeldi gagnvart nemendunum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Strætó ver endurgjaldið Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Tók að sér að verða trúnaðarmaður og var rekin 420 milljónir fyrir Toppstöðina Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Nýjast á mbl.is » Aukið aðhald óháð Kerecis Hvað gerðist í Íran í dag? Íslamska lýðveldið muni berjast til síðasta blóðdropa Ósáttir með baul stuðningsmanna Myndir: Fallinna minnst í fjögurra ára stríði Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Nýlegar umferðarspár – Samanburður við eldri spár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndir: „Jaðrar við ofbeldi gagnvart nemendunum“ Hvetja starfsfólk til að yfirgefa Ísrael í dag Íslamska lýðveldið muni berjast til síðasta blóðdropa Seðlabankinn gerir alvarlegar athugasemdir Mest lesið Í gær Í vikunni Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Strætó ver endurgjaldið Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Tók að sér að verða trúnaðarmaður og var rekin 420 milljónir fyrir Toppstöðina Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju

Share this article