Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Alþjóðalög „ekki efst á blaði“ Bandaríkjamanna

Read Full Article →

Erlent | mbl | 1.3.2026 | 13:42 Alþjóðalög „ekki efst á blaði“ Bandaríkjamanna Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Samsett mynd/Ólafur Árdal/AFP Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Íran Minnst sex látnir eftir eldflaugaárás á Ísrael Ólafur Ragnar hæðist að Von der Leyen Fordæma árásir Bandaríkjamanna harðlega Fjöldi Íslendinga óskað eftir aðstoð Bandaríkin hunsi alþjóðalög og mannlegt siðferði » Fleiri tengdar fréttir Donald Trump Bandaríkjaforseti Ólafur Ragnar hæðist að Von der Leyen Fordæma árásir Bandaríkjamanna harðlega Fjöldi Íslendinga óskað eftir aðstoð Bandaríkin hunsi alþjóðalög og mannlegt siðferði Hvað gerist eftir dauða Khameneis? » Fleiri tengdar fréttir Alþjóðalög voru „ekki efst á blaði“ hjá Bandaríkjamönnum og Ísraelum þegar ákveðið var að hefja hernaðaraðgerðir í Íran á laugardag að sögn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. „Það er alveg ljóst að mat Ísraela og Bandaríkjamanna er að þeir hafi vísað frá yfirvofandi hættu af völdum Írans. Það er þeirra mat sem við höfum ekki stöðu til að sannreyna,“ segir Þorgerður í samtali við mbl.is. „Það er þeirra að færa rök fyrir réttmæti aðgerðanna,“ bætir hún við og undirstrikar mikilvægi þess að þjóðir virði alþjóðalög. Virtu Bandaríkjamenn og Ísraelar alþjóðalög í aðgerðum sínum? „Eins og ég segi, þeir hafa vísað til yfirvofandi hættu af völdum Írans en ég held að fólk skynji það og sjái að alþjóðalögin hafi ekki verið efst á blaði í þessum aðgerðum.“ Frétt af mbl.is Gera árásir á skotmörk í „hjarta Tehran“ Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP/Schmidt Skýr skoðun Íslands Þá segir hún íslensk stjórnvöld hafa verið skýr með skoðun sína á klerkastjórninni sem hefur verið við völd í Íran undanfarna áratugi. „Með þessari framgöngu sinni á umliðnum árum og áratugum hefur hún stuðlað að ófriði, hún hefur ýtt undir öfgar á svæðinu, sérstaklega í Miðausturlöndum, og síðan er enn verra hvernig hún hefur gengið fram gagnvart borgurunum með bæði ofbeldi og drápum,“ segir hún. „Ég vil draga fram að í því ljósi að þá er engin eftirsjá eftir þessum stjórnarháttum eða því hvernig þeir hafa beitt sér eða fyrir hvað þessi klerkastjórn hefur staðið fyrir. En auðvitað hefur maður þungar áhyggjur af stríðsástandinu sem er víða um heiminn,“ segir hún. Hún segir stigmögnun í heimsátökum vera að færa okkur fjær eftirsóttum friði, hvort sem litið er til Úkraínu eða Miðausturlanda. Frétt af mbl.is Beint: Hernaðaraðgerðir í Íran Íslendingarnir fái aðstoð Greint var frá því á mbl.is fyrr í dag að fjöldi Íslendinga sem staddur er á áhrifasvæðum í Miðausturlöndum hefði leitað aðstoðar hjá borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins. Þorgerður segir það ekki útilokað að íslensk stjórnvöld reyni að flytja fólkið frá hættusvæðum. „Við erum í miklu samstarfi við Norðurlöndin í þessu því að þau eru með sendiráð og fulltrúa á svæðinu. Þannig að við erum í samráði og samstarfi við þau en við höfum verið að taka við nokkuð mörgum ábendingum vegna Íslendinga sem eru staddir á svæðinu og höfum brýnt fyrir fólki að virða tilmæli viðkomandi stjórnvalda og fylgjast líka með staðbundnum fjölmiðlum. En við munum veita þessu fólki, okkar fólki, Íslendingunum, bæði upplýsingar og aðstoð eftir fremsta megni. Það liggur í hlutarins eðli,“ segir Þorgerður. Frétt af mbl.is Fjöldi Íslendinga óskað eftir aðstoð Ekki tilefni til bjartsýni Heldur þú að þessar aðgerðir geti leitt til breytinga á stjórnarfari Írans? „Sagan sýnir að það er ekkert endilega tilefni til bjartsýni um að svo verði,“ segir hún en segist vona að breytingar verði þar sem þær séu nauðsynlegar. „Ég vona svo innilega að Íranir fái núna raunverulega sjálfir um það að segja hvernig stjórnkerfi verði byggt upp en verði ekki tekið yfir af einhverjum öfgaöflum,“ segir Þorgerður að lokum. Frétt af mbl.is Hvað gerist eftir dauða Khameneis? „Það er þeirra að færa rök fyrir réttmæti aðgerðanna,“ segir Þorgerður Katrín. AFP/Shvan Harki Tengdar fréttir Íran Minnst sex látnir eftir eldflaugaárás á Ísrael Ólafur Ragnar hæðist að Von der Leyen Fordæma árásir Bandaríkjamanna harðlega Fjöldi Íslendinga óskað eftir aðstoð Bandaríkin hunsi alþjóðalög og mannlegt siðferði » Fleiri tengdar fréttir Donald Trump Bandaríkjaforseti Ólafur Ragnar hæðist að Von der Leyen Fordæma árásir Bandaríkjamanna harðlega Fjöldi Íslendinga óskað eftir aðstoð Bandaríkin hunsi alþjóðalög og mannlegt siðferði Hvað gerist eftir dauða Khameneis? » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Alþjóðalög „ekki efst á blaði“ Bandaríkjamanna Íslendingurinn fékk tækifæri vegna barnaláns Minnst sex látnir eftir eldflaugaárás á Ísrael Several Icelanders request assistance Man. Utd – Crystal Palace kl. 14, bein lýsing Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Bókaðu stund fyrir bók Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er grafalvarleg staða“ Khamenei látinn Beint: Hernaðaraðgerðir í Íran 21 milljarðs gjaldþrot Play Mest lesið Í gær Í vikunni Íranir svara árásum: Trump hótar meiri hörku Beint: Hernaðaraðgerðir í Íran Khamenei látinn Mesta röskun á flugi frá því í covid-faraldrinum Íslamska lýðveldið muni berjast til síðasta blóðdropa Hvað gerðist í Íran í dag? Írani á Íslandi: Ánægður með árásirnar Fjöldi Íslendinga óskað eftir aðstoð Hvað gerist eftir dauða Khameneis? Ólafur Ragnar hæðist að Von der Leyen Íranar brugðist við með árásum á fimm ríki Beint: Hernaðaraðgerðir í Íran Leifar belgískrar konu fundnar Khamenei látinn Hæsta viðvörunarstig á Kanaríeyjum Aðsetur æðstaklerksins jafnað við jörðu Bandaríkin og Ísrael gera árás á Íran Merki um að Khamenei sé látinn „Við ætlum að rústa hernum þeirra“ Aflýsa flugferðum vegna ástandsins Hæsta viðvörunarstig á Kanaríeyjum Beint: Hernaðaraðgerðir í Íran Það eina sem heldur Pútín á lífi „Á eiturlyfjum og voru gjörsamlega stjórnlausir“ Gekk fram á lík sonar síns við útidyrnar Íranar brugðist við með árásum á fimm ríki Segir sjúkraskip á leið til Grænlands Khamenei látinn „Eins og við værum frummenn“ Hefnd Pútíns – skelfing hjá Dönum Nýjast á mbl.is » Alþjóðalög „ekki efst á blaði“ Bandaríkjamanna Íslendingurinn fékk tækifæri vegna barnaláns Minnst sex látnir eftir eldflaugaárás á Ísrael Several Icelanders request assistance Man. Utd – Crystal Palace kl. 14, bein lýsing Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Bókaðu stund fyrir bók Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við ætlum að rústa hernum þeirra“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Hvað gerist eftir dauða Khameneis? Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Mest lesið Í gær Í vikunni Íranir svara árásum: Trump hótar meiri hörku Beint: Hernaðaraðgerðir í Íran Khamenei látinn Mesta röskun á flugi frá því í covid-faraldrinum Íslamska lýðveldið muni berjast til síðasta blóðdropa Hvað gerðist í Íran í dag? Írani á Íslandi: Ánægður með árásirnar Fjöldi Íslendinga óskað eftir aðstoð Hvað gerist eftir dauða Khameneis? Ólafur Ragnar hæðist að Von der Leyen Íranar brugðist við með árásum á fimm ríki Beint: Hernaðaraðgerðir í Íran Leifar belgískrar konu fundnar Khamenei látinn Hæsta viðvörunarstig á Kanaríeyjum Aðsetur æðstaklerksins jafnað við jörðu Bandaríkin og Ísrael gera árás á Íran Merki um að Khamenei sé látinn „Við ætlum að rústa hernum þeirra“ Aflýsa flugferðum vegna ástandsins Hæsta viðvörunarstig á Kanaríeyjum Beint: Hernaðaraðgerðir í Íran Það eina sem heldur Pútín á lífi „Á eiturlyfjum og voru gjörsamlega stjórnlausir“ Gekk fram á lík sonar síns við útidyrnar Íranar brugðist við með árásum á fimm ríki Segir sjúkraskip á leið til Grænlands Khamenei látinn „Eins og við værum frummenn“ Hefnd Pútíns – skelfing hjá Dönum

Share this article