Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandaríkjaforseti íhugar að draga úr hernaðaraðgerðum gegn Íran

Read Full Article →

Bandaríkjaforseti íhugar að draga úr hernaðaraðgerðum gegn Íran en varnarmálaráðherra Ísraels segir að árásir eigi eftir að aukast næstu daga. Íran skaut eldflaugum að sameiginlegri herstöð Bretlands og Bandaríkjanna í Indlandshafi í gær. BBC segir árásina hafa misheppnast. Íranskar eldflaugar náðu ekki að herstöð Bretlands og Bandaríkjanna Bandaríska stórblaðið Wall Street journal greindi fyrst frá árásunum og hafði þær eftir háttsettum bandarískum embættismönnum. Breska ríkisútvarpið BBC staðfesti árásirnar og sagði tveimur írönskum eldflaugum hafa verið skotið að herstöðinni en að hvorug þeirra hafi náð þangað. Herstöðin er á Diego Garcia, afskekktri lítilli eyju í Indlandshafi, í um 4.000 kílómetra fjarlægð frá Íran. Varnarmálaráðuneyti Bretlands staðfesti hvorki né neitaði að árásin hefði verið gerð og óvíst er hversu nálægt herstöðinni flugskeytin lentu. Í yfirlýsingu frá ráðuneytinu segir að kæruleysislegar árásir Írana í heimshlutanum væru ógn við breska hagsmuni og bandamenn. Bresk stjórnvöld hafa gefið bandaríska hernum leyfi til að framkvæma sprengjuárásir frá Diego Garcia en BBC að enn hafi ekki borist fréttir af slíkum árásum. Mjög nálægt því að ná markmiðum sínum Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á samfélagsmiðli sínum Truth Social í nótt að hann íhugaði að draga úr hernaðaraðgerðum gegn Íran. Bandaríkin væru mjög nálægt því að ná markmiðum sínum. Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, sagði stuttu síðar að forsetinn og varnarmálaráðuneytið hefðu gert ráð fyrir að það myndi taka um það bil fjórar til sex vikur að ná markmiðum hernaðaraðgerðanna. Þrátt fyrir þessar fullyrðingar forsetans sagði Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels í yfirlýsingu í dag, að Ísrael og Bandaríkin myndu auka loftárásir á Íran verulega næstu daga. „Við erum staðráðin í að bæta í og halda áfram árásum gegn írönsku hryðjuverkastjórninni, taka æðstu embættismenn hennar af lífi og hindra hernaðarlega getu hennar, þar til ógnin gegn Ísrael og bandarískum hagsmunum í heimshlutanum er ekki lengur til staðar.“ Í morgun sagði íranska kjarnorkustofnunin að Natanz-kjarnorkuverið, sem er staðsett í miðhluta Írans, hafi orðið fyrir loftárásum í morgun. Alþjóðakjarnorkustofnunin segir að Íranar hafi ekki tilkynnt um meiri geislun við kjarnorkuverið. Forstjóri stofnunarinnar kallaði eftir því að árásum verði hætt á kjarnorkuinnviði.

Share this article