Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandaríkjaher sagður reiðubúinn til árása á Íran

  • What: The United States military is reportedly prepared to attack Iran, possibly as early as the coming weekend.
  • Impact: Heightened tensions between the US and Iran due to a new nuclear agreement.
Read Full Article →

Bandaríkjaher er sagður reiðubúinn til árása á Íran, jafnvel um komandi helgi. Bandaríkjaforseti hefur ekki fyrirskipað árás, en hluti flota hersins er nú þegar kominn til Persaflóa og Arabíuhafs og enn er von á liðsauka. Spenna hefur stigmagnast í samskiptum Bandaríkjanna og Íran vegna nýs kjarnorkusamnings milli landanna sem ekki enn hefur tekist að ná samkomulagi um. Samninganefndir ríkjanna hafa undanfarið fundað meðal annars í Genf í Swiss og Óman en án árangurs fram til þessa. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ýjað að því að hann vilji sjá stjórnarskipti í Íran og hefur beitt yfirvöld auknum þrýstingi undanfarið og aukið herafla í Mi-Austuurlöndum. Flugmóðurskipið USS Abraham Lincoln komið er og 13 herskip til viðbótar til Persaflóa og Arabíuhafs. Þá er flugmóðurskipið USS Gerald R. Ford á leiðinni á sömu slóðir. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, hefur skipað pólskum ríkisborgurum til að yfirgefa Íran strax, eftir að Bandaríkjaforseti gaf til kynna að Bandaríkjaher væri tilbúinn að ráðast á Íran. Þá tilkynnti þýska varnarmálaráðuneytið fyrr í dag að það hefði tímabundið flutt hermenn sína í Erbil í norður Írak í burtu vegna stighækkandi spennu í Mið-Austurlöndum.

Share this article