- What: International operation against counterfeit drug trade
- Impact: Law enforcement action against illegal drug distribution
Tollgæslan tók þátt í alþjóðlegum aðgerðum 30 ríkja á vegum Europol þar sem var skorin upp herör gegn smygli á og viðskiptum með ólögleg lyf. Aðgerðirnar leiddu til þess að lagt var hald á lyf fyrir 33 milljónir evra, 3.354 einstaklingar ákærðir og 43 skipulagðir glæpahópar rannsakaðir. Lyfjastofnun liðsinnti Tollgæslunni við aðgerðirnar. Fréttastofa RÚV greindi frá því í síðustu viku að peptíðar gengju kaupum og sölum á samfélagsmiðlum og að unglingar notuðu þau til að líta betur út. Einn leitaði á eitrunarmiðstöð vegna afleiðinganna. Í tilkynningum frá Tollgæslunni og Lyfjastofnun í dag kemur fram að lagt hefur verið hald á 5.000 glös með ólöglegum peptíðum hér á landi. Allt efnið kom frá Kína og var sent hingað með pósti og hraðsendingum. Tollurinn hefur lagt hald á 34 mismunandi tegundir af peptíðum sem hafa verið sendar hingað. Margar þeirra hafa aðeins verið prófaðar á mönnum í takmörkuðum mæli og er því óvíst hver langtímaáhrif þeirra á notendur eru. Einnig var lagt hald á tæplega ellefu þúsund töflur og þrjá lítra af svokölluðum SARMs-efnum. Þau eru ætluð til vöðvauppbyggingar.