Svissnesk stjórnvöld hafa samþykkt að greiða eina, sértæka fjárhæð upp á 50 þúsund svissneska franka, til fórnarlamba og aðstandenda þeirra sem létust í hinum mannskæða næturklúbbsbruna í Crans-Montana á nýársdag. Greiðslan nemur um 8 milljónum íslenskra króna á gengi dagsins og á að ná til hvers einstaklings sem lést eða var lagður inn á sjúkrahús eftir brunann, samkvæmt upplýsingum stjórnvalda. Bruninn braust út skömmu eftir miðnætti 1. janúar í kjallara skemmtistaðarins Le Constellation og létust 41 manns, auk þess sem yfir hundrað slösuðust alvarlega. Svissneska sambandsráðið hyggst flýta bráðabirgðalöggjöf til að greiðslurnar geti farið fram. Ráðherrar sögðu að hefðbundnar leiðir, tryggingar og bætur á vegum kantónanna, endurspegluðu ekki nægilega umfang hörmunganna og því stigi alríkið nú inn með beinum hætti. Greiðslurnar eiga að vera óháðar niðurstöðu saka- eða einkamálarannsókna og fela ekki í sér afstöðu til þess hver beri ábyrgð. Þær eru settar fram sem samstöðuframlag en ekki niðurstaða um bótaskyldu. Leit að sáttum utan dóms Samhliða þessu hyggjast stjórnvöld boða til samráðsfundar með þátttöku fórnarlamba, tryggingafélaga og yfirvalda til að reyna að greiða fyrir sáttum utan dóms og draga úr líkum á löngum og kostnaðarsömum dómsmálum. Sviss hefur jafnframt gefið til kynna að ríkið geti lagt til allt að 20 milljónir franka til slíkra sátta. Samsvarar það um 3,1 milljarði íslenskra króna. Rannsókn á orsökum brunans stendur enn yfir. Vitni og saksóknarar hafa bent á að eldurinn kunni að hafa kviknað innandyra þegar flugeldar eða neistakerti kveiktu í mjög eldfimum hljóðeinangrunarefnum í lofti kjallarans