Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Svartsýni út­breidd en staðan ágæt

Read Full Article →

Heimilin eru einstaklega svartsýn á stöðuna í efnahagsmálum í dag og sjá ekki fram á bjartari tíma á næstunni. Væntingavísitalan mældist 56,3 í mars og hefur ekki verið lægri frá haustinu 2020, þegar heimsfaraldur reið yfir. Þar áður mældist vísitala síðast lægri í lok árs 2010. Jón Bjarki Benediktsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir að um sé að ræða býsna útbreidda svartsýni en þróunin er þó ólík þeirri sem sást í síðustu dýfum. Svartsýnin virðist þá ekki birtast í hagtölum. Þannig hafi heimilin til að mynda aukið væntingar sínar um stórkaup og kaupmáttur aukist. Greiðslubyrði hafi ekki aukist eins mikið og ætla mætti af hækkandi vöxtum, og vanskil sáralítið ef nokkuð aukist og séu minni en var til dæmis fyrir faraldur. Þá sé aukið atvinnuleysi að mestu bundið við aðflutt vinnuafl og innflytjendur en langflestir á vinnufærum aldri séu enn með vinnu. „Heimilin standa velflest býsna traustum fótum en umræðan er auðvitað þannig að hér sé verulega snúin staða uppi og sú snúna staða er fyrst og fremst, í bili alla vega, bundin við vaxtastig og verðbólguna,“ segir Jón Bjarki. Til viðbótar við sterka stöðu heimilanna séu útflutningsgreinarnar að styrkjast eftir skell síðasta haust. Verð á útflutningsafurðum, bæði sjávarafurðum og áli, sé hátt, álverið á Grundartanga komist vonandi í fulla starfsemi um mitt ár, og útlit er fyrir betri stöðu í ferðaþjónustu en gert var ráð fyrir í lok síðasta árs. „Hvert sem maður lítur, staðan er ekkert sérstaklega slæm. Þessi umræða hefur farið mjög hátt og þetta er alvöru vandamál, en þetta er sem betur fer ekki enn orðið þannig vandamál að það sé farið að valda verulegum skaða fyrir heimilin og fyrirtæki í landinu, þannig að fyrirtæki séu í stórum stíl að lenda í greiðsluvandræðum, mikill fjöldi fólks að missa vinnuna og þar fram eftir götum,“ segir Jón Bjarki. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article