Rétt eins og í mars sl. voru þátttakendur í markaðskönnun Viðskiptablaðsins beðnir að spá um hve háir stýrivextir verða í lok árs 2026. Svartsýni hefur aukist frá því í mars en þá taldi rúmlega 56% þátttakenda að stýrivextir verði á bilinu 6% til 7% í lok árs og 28% taldi að vextir yrðu á bilinu 7% til 8%. Í könnuninni nú snýst staðan við. Þannig reikna 58% þátttakenda með að vextir verði á bilinu 7% til 8% í árslok á meðan 27% telja að þeir verði á bilinu 6% til 7%. Þegar horft er til verðbólgunnar eru breytingarnar á milli kannana ekki jafn miklar þó einnig megi greina aukna svartsýni. Í mars töldu 61% þátttakenda að verðbólga verði á bilinu 4% til 5% í lok árs en nú hækkar hlutfallið upp í 73%. Í mars taldi fimmtungur að verðbólga verði á bilinu 3% til 4% í lok árs en nú telur aðeins 6% að verðbólgan verði á því bili. Loks töldu 15% þátttakenda í mars að verðbólga verði á bilinu 5% til 6% en nú hækkar hlutfallið upp í 20%. Könnunin var send á 287 markaðs- og greiningaraðila og bárust 114 svör sem jafngildir tæplega 40% svarhlutfalli. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .