Tólf mánaðar verðbólga nemur 5,2% samkvæmt nýjustu mælingum. Eftir að hafa sveiflast sitt hvorum megin við fjögur prósentin meginþorra síðasta árs tók verðbólgan að þokast hratt upp á við í lok síðasta árs og byrjun þessa. Í ljósi þessa kemur ekki á óvart að langflestir þátttakendur í markaðskönnun Viðskiptablaðsins reikni með að peningastefnunefnd haldi stýrivöxtum óbreyttum á vaxtaákvörðunarfundinum í næstu viku. Til að bæta gráu ofan á svart hefur olíuverð rokið upp vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og mun væntanlega hafa áhrif á næstu verðbólgumælingar. Af svörum markaðsaðila að dæma mun verðbólgan mjakast hægt niður á við. Flestir þeirra, eða rúmlega 61%, gera ráð fyrir að hún verði á bilinu 4% til 5% í lok árs. Fimmtungur þátttakenda er öllu bjartsýnni og spáir því að verðbólga verði á bilinu 3% til 4% í lok árs. Tæplega 4% reikna með að verðbólgan verði nálægt lögbundnu 2,5% markmiði og spá 2% til 3% verðbólgu í lok þessa árs. Aftur á móti reikna rúmlega 15% þátttakenda með að baráttan við verðbólguna muni litlu eða engu skila og að hún mælist á bilinu 5% til 6% í lok árs. Sjá einnig Öll vötn falla til óbreyttra vaxta Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .