- What: Article discusses unemployment in Iceland
- Impact: Relevant to policymakers and economic analysts
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, segir stöðuna á vinnumarkaði óvenjulega og erfiða viðureignar. Á meðan atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara sé um 10 prósent mælist atvinnuleysi meðal íslenskra ríkisborgara nánast ekkert. Öll spjót beindust að forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Hún var þráspurð út í aðgerðir í efnahagsmálum í ljósi þrálátrar verðbólgu og aukins atvinnuleysis. Verðbólga stóð í stað í 5,2 prósentum milli janúar og febrúar en sérstakar áhyggjur vakti á hversu breiðum grunni verðhækkanir eru sem bendir til þess að verðbólgan verði þrálátari en vonir stóðu til. Atvinnuleysi mælist 7,3 prósent hjá Hagstofunni og hefur ekki mælst meira síðan í covid-faraldrinum. Skófla í stað sleggju Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði athygli ríkisstjórnarinnar einhvers staðar annars staðar en í hagstjórninni og nefndi í því samhengi fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald ESB-viðræðna. „Stöðugleiki og lífskjör fást ekki keypt í lágvöruverðsverslunum í Brussel. Við þurfum að taka til heima og taka hagstjórninni föstum tökum.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði forsætisráðherra ekki hafa mætt til leiks með sleggju heldur skóflu og nú væri hún komin ofan í holu. „Hvað getum við gert til að hjálpa ykkur upp úr holunni?“ Stefán Vagn Stefánsson, varaformaður Framsóknarflokksins, var á svipuðum slóðum og spurði forsætisráðherra út í planið. „Var planið í fyrsta lagi að hækka gjöld umfram verðbólgumarkmið, að stórauka útgjöld ríkisins, að hækka laun umfram almennan markað og að skattleggja fólk og fyrirtæki óhófleg þrátt fyrir viðvaranir um að allt þetta sem ríkisstjórnin fór í?“ Nýjar aðstæður á vinnumarkaði Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, sagðist vitaskuld ekki sátt við síðustu mælingar og að samstillt átak þurfi til að koma verðbólgu niður. Aðhald þurfi á sviði ríkisfjármála og það muni koma í ljós í fjármálaáætlun sem kynnt verður í byrjun apríl. Staða hagkerfisins væri þó sterk og nýlega hafi Fitch Ratings hækkað lánshæfismat ríkissjóðs. En hún sagði hagkerfið einnig glíma við óvenjulegar áskoranir eins og tvískiptan vinnumarkað sem ekki hefði sést í langan tíma. „Það er 10 prósent atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara, 10 prósent, og það er varla mælanlegt atvinnuleysi meðal íslenskra ríkisborgara. Þetta gerir það að verkum að hefðbundin hagstjórnartól ná með ólíkum hætti til einstaklinga. Þetta eru nýjar aðstæður sem við finnum okkur í.“