Yfirvöld í Íran hafa greint frá því að 165 hið minnsta voru drepin í árás á barnaskóla í Minab og níu spítalar í landinu hafa orðið fyrir miklu skemmdum í árásum Bandaríkjanna og Ísrael á Íran. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst yfir verulegum áhyggjum af stríðsátökunum í Mið-Austurlöndum og árásum á almenna borgara, innviði, skóla og spítala. Miklar árásir hafa verið á Teheran í Íran í nótt og í Líbanon. Ísraelski herinn skipaði í nótt íbúum á 59 svæðum í Líbanon að flýja strax vegna fyrirhugaðra árása sem beinast gegn Hezbolla-hreyfingunni. Árásirnar beindust að úthverfum í suðurhluta Líbanon sem eru sjía-hverfi og helstu birgðageymslur Hezbollah-hreyfingarinnar eru taldar vera þar, samkvæmt fjölmiðlinum Al Jazzera. Þúsundir íbúa flúðu heimili sín og margir þurftu að sofa utandyra. Þá hafa einnig verið árásir á Kúveit og ástralska herstöð í Dubai og eldur kviknaði í bandaríska sendiráðinu í Riyadh í Sádí-Arabíu eftir árás tveggja dróna. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur heitið hefndum vegna þessara árása. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í nótt að bandarískir ríkisborgarar ættu að yfirgefa Mið-Austurlönd strax. Ekki fylgdu þó neinar upplýsingar um hvernig best væri fyrir fólk að koma sér burt, en flugsamgöngur hafa legið niðri vegna lofthelgislokanna síðan átök brutust út. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði þingmönnum á bandaríska þinginu í gær að Bandaríkin hefðu ráðist á Íran vegna þess að þeir vissu að Ísraelar ætluðu að ráðast á Íran. Bandarískir hermenn hefðu þurft að verja sig fyrir hefndarárásum. Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, sagði að ummæli Rubio sýni að það hafi ekki verið nein yfirvofandi ógn til staðar og að Bandaríkin hafi farið inn í stríðsátökin fyrir tilstilli Ísraels. Olíuverð heldur áfram að hækka eftir að Hormússundi var lokað í gær. Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna hefur lýst yfir áhyggjum af því að heimsminjar kunni að vera í hættu vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Golestan-höllin í Teheran skemmdist í árásum í Teheran í nótt, en höllin er á heimsminjaskránni.