- What: Discussion on France's nuclear plan and Iceland's stance
- Impact: Political and diplomatic context
Íslendingar eru ekki þátttakendur í kjarnorkufælingaráætlun Frakklandsstjórnar, en það er ekki óeðlilegt að Evrópa treysti sínar varnir, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Forseti Frakklands tilkynnti í gær að ríkið hygðist bæta við kjarnorkuvopnabúr sitt og að átta Evrópuríki hefðu þegið boð um að taka þátt í kjarnorkufælingaráætlun forsetans. Sendiherra Frakklands hér á landi sendi öllum þingmönnum á Alþingi póst þar sem hann vekur athygli á ræðu Frakklandsforseta í gær og opnar fyrir samtal um innihald hennar. „Við Íslendingar erum ekki þátttakendur í þessu en munum gera það sem þarf til að vera virkur bandamaður og styrkja og efla varnir Atlantshafsbandalagsins en það þýðir ekki að það verði kjarnorkuvopn hér,“ segir Þorgerður Katrín. Þorgerður segir Íslendingum ekki hafa verið boðið að taka þátt í viðræðum um kjarnorkufælingaráætlunina. Forsætisráðherrar Danmerkur og Svíþjóðar sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í gær þar sem þau sögðu ríkin hafa þegið boð um að taka þátt í viðræðum við Frakka um að styrkja sameiginlegan fælingarmátt á sviði kjarnorkuvopna. „Við höfum vitað af afstöðu Danmerkur og Svíþjóðar í þessu máli. Við fylgjumst vel með og samtalið er gott. Það sem mér finnst skipta mestu er að það er verið að efla getu og áfallaþol Atlantshafsbandalagsins. Það er verið að styrkja Evrópu með ýmsum aðgerðum, meðal annars þessum aðgerðum Frakklandsforseta. En við Íslendingar einfaldlega fylgjumst með.“ Spurð hvort Íslendingar myndu taka þátt í viðræðum um áætlun Frakklandsstjórnar segir Þorgerður alltaf eðlilegt að taka samtalið. „Það sem við höfum fyrst og síðast í huga er hvernig við getum eflt og treyst varnir okkar og öryggi en það er ekki endilega að fara í gegnum kjarnorkuvæðingu á norðurslóðum. Það er ekki það fyrsta sem mér dettur í hug.“