Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Við erum að virkja vatn, vind og varma“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 3.3.2026 | 18:46 „Við erum að virkja vatn, vind og varma“ Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður Landsvirkjunar á ársfundi í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Hvammsvirkjun Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Klofningur vegna Hvammsvirkjunar Fá virkjunarleyfi til bráðabirgða Skýtur föstum skotum á Jóhann Pál Telja áhrif úrskurðarins á Hvammsvirkjun óveruleg » Fleiri tengdar fréttir Ísland getur ekki sótt orku neitt annað ef upp kemur orkuskortur. Þess vegna verður að tryggja að Íslendingar eigi fjölbreytta orkukosti til að tryggja orkuöryggi. Þetta er meðal þess sem Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður Landsvirkjunar sagði í ávarpi sínu á ársfundi Landsvirkjunar í dag. Hún sagði það gleðiefni að núverandi stjórnvöld hefðu sett aukna orku í forgang og að kyrrstaða áranna á undan hefði því verið rofin í þessum málaflokki. „Nú reynir á að einfalda leyfisveitingaferli en sem dæmi má nefna að það ferli hefur tafið fyrir Hvammsvirkjun árum, jafnvel áratugum saman, með tilheyrandi kostnaði fyrir samfélagið allt. Við viljum öll vanda til verka en fyrr má nú aldeilis vera,“ sagði Brynja. Eitt mesta framkvæmdatímabil í 60 ára sögu fyrirtækisins „Þá telst það einnig til tíðinda að í febrúar voru tveir virkjanakostir, Holtavirkjun og Skrokkölduvirkjun, færðir í nýtingarflokk rammaáætlunar en í 13 ára sögu hennar hefur engin vatnsaflsstöð verið byggð eftir að hafa farið í gegnum það ferli. Hvammsvirkjun verður sú fyrsta,“ hélt Brynja áfram. Leyfisveitingarferlið fyrir þessar tvær virkjanir verði prófsteinn á hvernig tekist hafi til við nýsamþykktar breytingar á lagaumhverfinu. Þá sagði hún að nú væri að hefjast eitt mesta framkvæmdatímabil í 60 ára sögu Landsvirkjunar. „Í dag eru fjögur stór verkefni í pípunum og það er gaman að segja frá því að við erum að virkja vatn, vind og varma. Hvammsvirkjun, Vaðölduver, stækkun Sigöldu og ný toppvél á Þeistareykjum munu auka uppsett afl Landsvirkjunar um rúmlega 300 megavött til viðbótar við þau 2.200 sem eru nú þegar uppsett.“ „Hvammsvirkjun, Vaðölduver, stækkun Sigöldu og ný toppvél á Þeistareykjum munu auka uppsett afl Landsvirkjunar um rúmlega 300 megavött til viðbótar við þau 2.200 sem eru nú þegar uppsett.“ mbl.is/Eggert Jóhannesson Gera ráð fyrir að fjárfesta fyrir um 190 milljarða Á næstu fimm árum er gert ráð fyrir að Landsvirkjun fjárfesti fyrir um 190 milljarða króna. Til samanburðar voru fjárfestingar Landsvirkjunar 25 milljarðar síðustu fimm ár. „Stór hluti af þessari upphæð rennur með einum eða öðrum hætti aftur út í íslenskt samfélag. Landsvirkjun er til dæmis með langumfangsmestu útboðin á Íslandi í ár en áætlað er að bjóða út verk fyrir um 70 milljarða króna sem er um þriðjungur af öllum þeim útboðum sem tóku þátt í útboðsþingi Samtaka iðnaðarins í janúar,“ sagði Brynja. „Við gerum ráð fyrir að um 100 manns verði við vinnu í Sigöldu þegar mest verður, 120 manns í Vaðöldu og 400 í Hvammsvirkjun. Framkvæmdum Landsvirkjunar fylgja líka töluverðar vegaframkvæmdir, til hagsbóta fyrir nærsamfélögin þar sem verið er að reisa þær.“ Frétt af mbl.is Framkvæmdaár í uppsiglingu 180 milljarðar til ríkisins á fimm árum Þó að Landsvirkjun standi styrkum fótum segir Brynja að það blasi við að fjárfestingartímabilið muni reyna verulega á fjárhagslegt bolmagn fyrirtækisins. „Það er ekki lengra síðan en árið 2020, þegar Landsvirkjun greiddi 10 milljarða króna í arð til ríkisins en árin þar á undan voru arðgreiðslur um einn til þrír milljarðar á ári. Þetta tókst fyrst og fremst með endursamningum við stórnotendur og agaðri fjárhagsstýringu. Landsvirkjun hefur núna samtals greitt um 110 milljarða króna í arð til íslenska ríkisins vegna rekstraráranna 20201-2025, sé miðað við tillögu stjórnar fyrir arðgreiðslu síðasta árs. Auk þess hefur Landsvirkjun greitt 70 milljarða króna í skatt vegna sama tímabils en ólíkt flestum fyrirtækjum á Íslandi greiðir Landsvirkjun tæplega 38% skatt en ekki 20%. Þannig greiðir Landsvirkjun samtals um 180 milljarða króna til ríkisins vegna rekstursins undanfarin fimm ár,“ sagði stjórnarformaðurinn. Tengdar fréttir Hvammsvirkjun Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Klofningur vegna Hvammsvirkjunar Fá virkjunarleyfi til bráðabirgða Skýtur föstum skotum á Jóhann Pál Telja áhrif úrskurðarins á Hvammsvirkjun óveruleg » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Íslendingum býðst flug frá Mið-Austurlöndum „Við erum að virkja vatn, vind og varma“ Bandaríkin hætta viðskiptum við Spán Spánn - Ísland, staðan er 1:0 Giftingarhringurinn hvergi sjáanlegur Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Röng upplýsingamiðlun getur grafið undan trausti Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Tekið á brotastarfsemi þegar upp kemst Marka stefnu gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði Mest lesið Í gær Í vikunni RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Búið að tendra í púðurtunnu Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Nýjast á mbl.is » Íslendingum býðst flug frá Mið-Austurlöndum „Við erum að virkja vatn, vind og varma“ Bandaríkin hætta viðskiptum við Spán Spánn - Ísland, staðan er 1:0 Giftingarhringurinn hvergi sjáanlegur Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kunnugt um 140 Íslendinga á áhrifasvæðum Þak sendiráðsins hrunið að hluta Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Mest lesið Í gær Í vikunni RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Búið að tendra í púðurtunnu Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju

Share this article