Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Áratugabið eftir græna ljósinu

Read Full Article →

Leyfisveitingarferli Hvammsvirkjunar, sem Landsvirkjun hyggst reisa í neðri hluta Þjórsár, hefur staðið yfir um langt skeið. Í dag er virkjunin komin með öll tilskilin leyfi. Rekja má sögu Hvammsvirkjunar meira en tvo áratugi aftur í tímann, en hugmyndir um virkjanir í Þjórsá höfðu verið til skoðunar frá því fyrir aldamót. Landsvirkjun hóf rannsókn á virkjunarkostum árið 2000. Horft var til þess að reisa eina virkjun, Núpsvirkjun, eða skipta henni í tvennt með Hvammsvirkjun og Holtavirkjun, auk þess sem horft var til Urriðafossvirkjunar. Mat á umhverfisáhrifum var framkvæmt í kjölfarið og lá fyrir árið 2003. Þegar 1. áfangi rammaáætlunar var afgreiddur haustið 2003 voru Hvammsvirkjun og Holtavirkjun flokkaðar saman sem valmöguleiki. Niðurstaða verkefnisstjórnar 1. áfanga var að setja virkjunarkostinn í flokk a, sem væri með minnst umhverfisáhrif. Við afgreiðslu 2. áfanga rammaáætlunar, taldi Landsvirkjun að hægt væri að taka Hvammsvirkjun í gagnið í fyrsta lagi árið 2015, þótt framkvæmda- og virkjunarleyfi lægju ekki fyrir. Mat á umhverfisáhrifum og aðalskipulag lá fyrir auk þess sem útboðshönnun var að mestu lokið. Verkefnisstjórn 2. áfanga lagði til að virkjunin yrði sett í nýtingarflokk. Rammaáætlun öðlaðist lagalegt gildi árið 2011. Fyrsta tillagan var samþykkt á Alþingi í janúar 2013 en þar var Hvammsvirkjun aftur á móti sett í biðflokk. Með þingsályktunartillögu árið 2015 var virkjunin færð í orkunýtingarflokk. Þar sem framkvæmdir höfðu ekki hafist innan 10 ára frá því að mat á umhverfisáhrifum var samþykkt þurfti að endurskoða matið að hluta. Árið 2018 lauk þeirri endurskoðun og hófst þá leyfisveitingaferlið. Sótt var um virkjunarleyfi sumarið 2021 en þá var markmiðið að hefja byggingu Hvammsvirkjunar árið 2022 og taka hana í rekstur 2026. Í lok árs 2022, einu og hálfu ári síðar, kom virkjunarleyfi frá Orkustofnun og gerðu áætlanir þá ráð fyrir gangsetningu síðla árs 2027. Skemmst er frá því að segja að þær áætlanir gengu ekki eftir. Nánar er fjallað um sögu Hvammsvirkjunar í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article