Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Niðurstöður um lesfimi grunnskólabarna birtar í fyrsta sinn

Read Full Article →

Niðurstöður um lesfimi grunnskólabarna undanfarin fimm ár hafa verið birtar í fyrsta sinn. Niðurstöðurnar eru flokkaðar eftir sveitarfélögum. Lesfimiprófin meta nákvæmni og hraða lestrar en tekið er fram að þau meta ekki lesskilning. Sjá má niðurstöðurnar hér . Í tilkynningu um málið á vef Stjórnarráðsins segir að niðurstöðurnar sýni að mikill munur sé á sveitarfélögum í frammistöðu. Stærri sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu virðast standa betur en mörg minni sveitarfélög á landsbyggðinni. Á lista yfir 12 efstu sveitarfélögin eru tvö efstu sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu (Seltjarnarnes og Garðabær) og eru fimm sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu meðal efstu 12 sveitarfélaga. Auk þess megi greina meiri sveiflur í árangri hjá minni sveitarfélögum. Hægt sé að skýra mun á milli sveitarfélaga en hann skýrist þó að einhverju leyti af stærð hópa þar sem vægi hvers einstaklings sé mikið í litlum hópum. Niðurstöður sveiflist því oft mikið á milli ára. Því sé óvarlegt að draga sterkar ályktanir um mun á milli sveitarfélaga sem byggja á niðurstöðunum. 12 hæstu sveitarfélög landsins samkvæmt niðurstöðum lesfimiprófa. Seltjarnarnes 93% Garðabær 85% Fjallabyggð 84% Mosfellsbær 84% Kópavogur 82% Svalbarðsstrandarhreppur 82% Snæfellsbær 82% Akranes 80% Norðurþing 80% Vestmannaeyjabær 80% Akureyri 80% Reykjavík 80% Niðurstöður úr stöðu- og framvinduprófum birtar 2027 Í tilkynningunni segir einnig að niðurstöður nýrra stöðu- og framvinduprófa matsferils í lesskilningi og stærðfræði verði birtar opinberlega eftir skólum samkvæmt reglugerð Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Áætlað er að þær niðurstöður verði birtar opinberlega vorið 2027 Markmiðið með birtingu á upplýsingum úr prófunum og lesfimi grunnskólabarna síðustu fimm ár er sagt vera aukið gagnsæi og til að þess að öðlast heildstæða yfirsýn yfir námsframvindu barna.

Share this article