Innlent | mbl | 5.3.2026 | 13:55 | Uppfært 14:12 Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Áður voru niðurstöður barna í lesfimi bornar saman við fyrirfram ákveðin viðmið sem lýstu væntingum um árangur. mbl.is/Eyþór Hólmfríður María Ragnhildardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Umdeild próf lögð fyrir nema Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Telja brotið á rétti drengsins og krefjast svara Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld » Fleiri tengdar fréttir Framsetningu á niðurstöðum lesfimiprófa sem lögð eru fyrir grunnskólabörn hefur nú verið breytt og fyrirfram ákveðin viðmið hafa verið látin fjúka. Þannig virðist sem börn verði nú aðeins borin saman við hvert annað, í stað þess að stuðst verði við „fyrirfram ákveðin viðmið sem lýstu væntingum um árangur“. Lesfimipróf eiga að meta hve hratt og nákvæmlega börn lesa texta. Prófin voru tekin í notkun árið 2016 og eru nú hluti af svonefndum matsferli. Lesfimi er mæld sem rétt lesin orð á mínútu. Undanfarin ár hefur verið stuðst við lesfimiviðmið sem Menntamálastofnun, forveri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, gaf út árið 2016 og sjá má í töflunni hér að neðan: Svona voru viðmiðin. Þannig áttu 90% nemenda í fyrsta bekk að geta lesið rétt 20 orð á mínútu. Viðmiðin fólu í sér væntingar um framfarir Viðmið 1 er í töflunni merkt 90% viðmið , 2. viðmið er 50% viðmið og 3. viðmið er 25% viðmið . Prósentutölurnar marka það hlutfall grunnskólanema sem Menntamálastofnun vildi á sínum tíma að næði hverju viðmiði fyrir sig. Í leiðbeiningum Menntamálastofnunar sagði að viðmiðin byggðu meðal annars á sjónarmiðum sérfræðinga úr ráðgjafahópi, niðurstöðum alþjóðlegra rannsókna á lesfimi, viðmiðum sem fræðimenn hefðu fjallað um og lytu að lesfimi og gögnum frá íslenskum skólum. Þá var tekið fram að þessi lesfimiviðmið fælu í sér væntingar um töluverðar framfarir frá þeirri stöðu sem ríkti þegar leiðbeiningarnar voru gefnar út. Frá því niðurstöður landsmeðaltals lesfimiprófa voru birtar fyrst árið 2021 hefur markmiðið, um að 90% íslenskra grunnskólabarna næðu 1. viðmiði, aldrei náðst. Frétt af mbl.is Lesfimiprófin nú til endurskoðunar Birt eftir sveitarfélögum í fyrsta sinn Í gærmorgun birti mennta- og barnamálaráðuneytið niðurstöður úr lesfimiprófum, sem lögð voru fyrir í byrjun og lok hvers skólaárs árin 2020 til 2025, eftir sveitarfélögum. Þetta var í fyrsta sinn sem ráðuneytið birtir slíkar upplýsingar eftir sveitarfélögum. Niðurstöðurnar í gærmorgun voru þó birtar á annars konar formi en áður. Frétt af mbl.is Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Lýsa ekki lengur væntingum um árangur Í tilkynningu Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS) í janúar segir að eldri lesfimiviðmið falli úr gildi og að nýtt fyrirkomulag taki við þar sem ekki verður lengur stuðst við fyrirfram ákveðin viðmið sem lýsi væntingum um árangur. „Nú byggir matið á raunverulegum gögnum frá síðustu árum sem sýna hvernig lesfimi barna á Íslandi þróast í reynd. Þetta gefur réttari og nákvæmari mynd af stöðu hvers nemanda,“ segir í tilkynningu MMS. „ Í stað þess að bera niðurstöður saman við ákveðin viðmið í lok skólaárs eru þær nú settar fram sem mælitala. “ Í tilkynningunni kemur fram að mælitölurnar sýni hvort færni nemenda sé lítil, í meðallagi eða mikil miðað við jafnaldra. Mælitölunni fylgir svo lýsing á stöðu nemandans, upplýsingar um styrk- eða veikleika í lestri, og leiðbeiningar um áherslur í áframhaldandi lestrarkennslu. Frétt af mbl.is 40 prósent ná ekki grunnviðmiðinu í 6. bekk Óljóst hvað felst í að ná lágmarki Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að lágmarksviðmið sé nú 2. viðmið. Aftur á móti kemur hvergi fram í tilkynningunni, eða þar sem niðurstöðurnar eru birtar, hvað það viðmið feli nákvæmlega í sér. Raunar er ekkert minnst á hvað nein viðmið feli í sér fyrir utan að 3. viðmiðið marki mestan leshraða. Þá vekur athygli að í nýja fyrirkomulaginu ná allir nemendur 1. viðmiði. Í fyrirkomulaginu sem stuðst var við áður fyrr gátu nemendur verið undir því viðmiði. Aftur á móti skal tekið fram að áfram geta foreldrar nálgast niðurstöður lesfimiprófsins barnsins síns í lesnum orðum á mínútu. Hér má sjá niðurstöðurnar eftir sveitarfélögum árin 2020-2025 skv. breyttu fyrirkomulagi. Frétt af mbl.is Börnin kunna jafnvel enga bókstafi Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Umdeild próf lögð fyrir nema Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Telja brotið á rétti drengsins og krefjast svara Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Óvæntustu úrslitin komu á Íslandi Skili 1.330 milljörðum til samfélagsins Eins og kvöld í Provence: Kjúklingur með hunangi og sinnepi Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Öll áherslan á Brussel Umræðan Lífeyrir fylgi launum Réttlæti fyrir alla Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samfylkingin hefur lagt áherslu á önnur mál Ríkislögreglustjóri vill efla hryðjuverkavarnir Kjarnorkuvetur í kvikmyndabransa Greiða tugi milljóna til að flýja Dúbaí Mest lesið Í gær Í vikunni Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Andlát: Haukur Guðmundsson Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Forsendurnar riða til falls Meiri háttar líkamsárás til rannsóknar Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Neyðarskýlið sannaði gildi sitt Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Óvæntustu úrslitin komu á Íslandi Skili 1.330 milljörðum til samfélagsins Eins og kvöld í Provence: Kjúklingur með hunangi og sinnepi Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Öll áherslan á Brussel Umræðan Lífeyrir fylgi launum Réttlæti fyrir alla Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tilboðið olli mér miklum vonbrigðum Undirbúa rýmingu vegna hættu- eða stríðsástands Beint: Enn annað ríki hótar þátttöku í stríðinu Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Mest lesið Í gær Í vikunni Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Andlát: Haukur Guðmundsson Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Forsendurnar riða til falls Meiri háttar líkamsárás til rannsóknar Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Neyðarskýlið sannaði gildi sitt Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“