Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Lækkun í hlutfalli barna sem ná lágmarksviðmiði

Read Full Article →

Innlent | mbl | 4.3.2026 | 9:03 Lækkun í hlutfalli barna sem ná lágmarksviðmiði Markmiðið með birtingunni er að auka gagnsæi og fá heildstæða yfirsýn yfir námsframvindu barna. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Umdeild próf lögð fyrir nema Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Telja brotið á rétti drengsins og krefjast svara Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Telur skólann vera að bregðast syni sínum » Fleiri tengdar fréttir Niðurstöður nýrra stöðu- og framvinduprófa Matsferils í lesskilningi og stærðfræði munu verða birtar opinberlega eftir skólum samkvæmt reglugerð sem mennta- og barnamálaráðherra hefur nú gefið út. Jafnframt hafa niðurstöður lesfimi grunnskólabarna undanfarin fimm ár nú verið birtar í fyrsta sinn og eru þær birtar eftir sveitarfélögum. Þetta segir í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Frétt af mbl.is Umdeild próf lögð fyrir nema Markmiðið að fá heildstæða yfirsýn Segir þar enn fremur að markmiðið með birtingunni sé að auka gagnsæi og fá heildstæða yfirsýn yfir námsframvindu barna. „Án sýnilegra mælikvarða stefnum við blint. Við þurfum fleiri mælikvarða og að hafa upplýsingarnar uppi á borðinu, fyrir börn, kennara og foreldra en ekki síður fyrir stjórnvöld, sveitarfélög, og skólastjórnendur. Þannig fáum við betri möguleika til að greina þróun milli ára, sjá hvar íhlutun gæti skilað mestum árangri og fylgjast með áhrifum aðgerða, til dæmis með snemmtækri íhlutun og meiri stuðningi til að ná betri námsárangri. Nú munum við rýna betur í þessar niðurstöður sem og þær niðurstöður sem við eigum eftir að fá úr samræmda Matsferlinum til að opna umræðuna um hvað við getum gert betur og hvar,” er haft eftir Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Frétt af mbl.is Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Meta nákvæmni og hraða lestrar Í tilkynningunni kemur enn fremur fram að lesfimisprófin meti nákvæmni og hraða lestrar. Þau hafi verið tekin í notkun árið 2016 og séu nú hluti af Matsferli. Þá séu prófin lögð fyrir þrisvar á hverju skólaári; í september, janúar og maí. Á vef Stjórnarráðsins eru birtar niðurstöður lesfimisprófa í byrjun og lok hvers skólaárs á árunum 2020–2025. Frétt af mbl.is Vill þyngja námsefni í grunnskólum Mikill munur á sveitarfélögum í frammistöðu „Heilt yfir sýnir þróunin lækkun í hlutfalli barna sem ná lágmarksviðmiði í lesfimi frá 2020 til 2024 en lítilsháttar hækkun á síðasta skólaári (2024–2025) sem nær þó ekki upp í hlutfallið í byrjun tímabilsins. Niðurstöðurnar sýna að mikill munur er á sveitarfélögum í frammistöðu. Stærri sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu virðast standa betur en mörg minni sveitarfélög á landsbyggðinni. Þau eru með jafnari árangur og almennt lægra hlutfall á 1. viðmiði en hærra á 3. viðmiði (hæsta viðmið lesfimi). Lágmarksviðmið er að nemendur nái a.m.k. 2. viðmiði og er hlutfall nemenda sem ná lágmarksviðmiði hæst á Seltjarnarnesi eða 90–93% frá 2020. Munurinn á hlutfalli þeirra sem ná lágmarksviðmiði í sterkustu og veikustu sveitarfélögunum er allt að 35–40 prósentustig. Hæstu sveitarfélögin (80% og hærri) í hlutfalli grunnskólabarna sem nær skilgreindu lágmarksviðmiði í lestrarhraða á lesfimiprófi í maí 2025: Seltjarnarnes 93% Garðabær 85% Fjallabyggð 84% Mosfellsbær 84% Kópavogur 82% Svalbarðsstrandarhreppur 82% Snæfellsbær 82% Akranes 80% Norðurþing 80% Vestmannaeyjabær 80% Akureyri 80% Reykjavík 80% Frétt af mbl.is Samræmd próf í vor: Niðurstöður birtar opinberlega Sterk tengsl milli lesfimi og lesskilnings Bent er á í tilkynningunni að lesfimisprófið mæli eingöngu lestrarhraða en ekki lesskilning. Jafnframt er tekið fram að rannsóknir gefi til kynna fylgni milli menntunarstigs og félagsstöðu foreldra og námsárangurs barna. Því geti menntunarstig og félagsstaða íbúa í ákveðnum sveitarfélögum haft umtalsverð áhrif til hækkunar á námsárangri í því sveitarfélagi og megi sjá vísbendingar um það í niðurstöðunum. Einnig er tekið fram að ekki eru birtar niðurstöður þegar færri en tíu nemendur eru í hópi. „Þátttaka grunnskóla í lesfimiprófum er valfrjáls. Að jafnaði hefur lesfimipróf verið lagt fyrir um 90% grunnskólanema á landinu. Fjölmargar rannsóknir sýna að sterk tengsl eru milli lesfimi og lesskilnings og með því að bæta lesfimi nemenda eflist lesskilningur jafnframt. Fyrirhuguð birting niðurstaðna úr stöðu- og framvinduprófum Matsferils í lesskilningi og stærðfræði var kynnt til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda í janúar. Birting hefst vorið 2027 og nær til skyldubundinna fyrirlagna í 4., 6. og 9. bekk. Hægt verður að skoða niðurstöður niður á landsvæði, sveitarfélög og skóla og sjá þróun á milli ára. Matsferill er nýtt safn verkfæra sem metur stöðu og framfarir barna á tíðari og fjölbreyttari hátt en áður.“ Nánari upplýsingar er að finna í nýrri reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats (Matsferils) í grunnskólum. Skoða má niðurstöður lesfimi grunnskólabarna eftir sveitarfélögum 2020–2025 hér. Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Umdeild próf lögð fyrir nema Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Telja brotið á rétti drengsins og krefjast svara Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Telur skólann vera að bregðast syni sínum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Landsliðsfyrirliðinn klár í slaginn 29% aukning í útflutningi eldisafurða Valgeir hlaut heiðursviðurkenningu Lækkun í hlutfalli barna sem ná lágmarksviðmiði Einungis 2,2 milljónir í útborgun Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Umdeild próf lögð fyrir nema Koma bara ef þeir fá læknishjálp Kanna hvort eftirlitsaðilar geti deilt húsnæði Evrópa komin í ógöngur með regluverk Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Evrópa komin í ógöngur með regluverk Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema Íbúð alelda í Grafarholti en engan sakaði Níu fá rúmar 11 milljónir Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Dimm él á Suðvesturlandi í dag Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Þurfum að koma upp 90 daga neyðarbirgðum af olíu RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Nýjast á mbl.is » Landsliðsfyrirliðinn klár í slaginn 29% aukning í útflutningi eldisafurða Valgeir hlaut heiðursviðurkenningu Lækkun í hlutfalli barna sem ná lágmarksviðmiði Einungis 2,2 milljónir í útborgun Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Kanna hvort eftirlitsaðilar geti deilt húsnæði Ómetanlegt að búa að sterkum auðlindum Tekið á brotastarfsemi þegar upp kemst Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Evrópa komin í ógöngur með regluverk Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema Íbúð alelda í Grafarholti en engan sakaði Níu fá rúmar 11 milljónir Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Dimm él á Suðvesturlandi í dag Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Þurfum að koma upp 90 daga neyðarbirgðum af olíu RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju

Share this article