Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Iceland Foods játa sig sigraða í deilum við Ísland

Read Full Article →

Breska verslanakeðjan Iceland ákveðið að hætta málaferlum við Ísland og sætta sig við að lúta í lægra haldi er varðar vörumerkið ICELAND, að því er segir í frétt Financial Times . Tíu ár eru síðan Ísland hóf málaferli þar sem farið var fram á ógildingu orðmerkisins og orð- og myndmerkisins ICELAND. Stjórnarformaður Iceland, Richard Walker, segir að félagið hyggist verja þeim hundruð þúsund pundum sem það hefði ellegar þurft að eyða í lögfræðikostnað við að fara með málið í fjórða og síðasta sinn fyrir dómstóla í Evrópu fremur í „sátta-afslátt“ (e. “rapprochement discount”) fyrir neytendur í Reykjavík. Í frétt FT segir að afslátturinn verði líklega í formi afsláttarmiða sem eigi að marka vilja verslanakeðjunnar til að bæta samband sitt við íslensku þjóðina. Ákvörðunin fylgir í kjölfar þess að almennur dómstóll Evrópusambandsins (e. General Court) féllst á niðurstöðu Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) í málinu, íslenskum stjórnvöldum í vil, í júlí síðastliðnum. Sjá einnig Enn lýtur Iceland í lægra haldi fyrir Ís­landi „Við töpuðum í þriðja sinn,“ sagði Richard Walker við FT. „Við ætlum að kasta inn handklæðinu. Það er í raun allt í lagi — við þurfum ekki að breyta nafninu okkar.“ Hann sagði að áhyggjur sínar hafi snúið að því að nú geti aðrir opnað verslanir og kallað þær Iceland. Malcolm Walker, stofnandi Iceland Foods og faðir Richard, hafði áður sagt að fjölskyldan myndi verja hugverkaréttindi félagsins af krafti. Sjá einnig Skel og Iceland Foods í Bret­landi stofna Ice JV ehf. Iceland Foods var stofnað árið 1970 og er í dag ein þekktasta verslanakeðja Bretlands. Fyrirtækið starfar í um 60 löndum og rekur tæplega 1000 verslanir í Bretlandi. Iceland Foods opnaði á dögunum „verslun innan verslunar“, afmarkað verslunarsvæði innan Nettó í Mjódd. Horft er til þess að innleiða samskonar verslunarsvæði innan fleiri Nettó verslana á þessu ári. Frá því að „verslun innan verslunar“ var kynnt í síðasta mánuði. Starfsfólk Nettó er hér ásamt Tarsem Dhaliwal, forstjóra Iceland Foods, sem er fyrir miðju og Auði Daníelsdóttur, forstjóra Dranga, sem er fyrir aftan hann. Íslensk stjórnvöld, í samstarfi við Íslandsstofu, Samtök atvinnulífsins og Icelandic Trademark Holding ehf., hafa farið fyrir ógildingarkröfum Íslands á vettvangi Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) frá árinu 2016. Í umfjölluninni er bent á að íslensk stjórnvöld hafi aldrei reynt að neyða Iceland til að skipta um nafn en hins vegar farið fram á ógildingu orðmerkisins og orð- og myndmerkisins ICELAND. Stjórnvöld Íslensk stjórnvöld gerðu sérstaklega athugasemdir við að matvörur væru merktar „Inspired by Iceland“. Rifjað er upp að Malcolm Walker, stofnandi Iceland Foods, sendi „sendinefnd“ til Íslands árið 2016 í því skyni að draga úr spennu í deilunum og ná samkomulagi. Hann hélt því fram að fyrirtæki hans hefði skráð nafnið sem firmaheiti árið 1970 og „lifað í sátt og samlyndi við landið sem heitir Ísland allar götur síðan“. Í umfjöllun FT kemur fram að íslenska ríkið hafi ekki svarað fyrirspurn viðskiptamiðilsins vegna málsins.

Share this article