Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þroskinn upp í hundrað prósent í sumum prufum

Read Full Article →

„Þetta er gott hráefni nema að það er kannski óþarflega mikið af hæng í þessu,“ segir Gunnar Hermannsson, framleiðslustjóri Brims á Akranesi, þar sem nú er hafinn skurður og hreinsun hrogna. Þegar rætt er við Gunnar fyrir hádegi í gær er verið að vinna loðnu úr Venusi RE og Svanur RE í biðstöðu með fullfermi við bryggju. Hann segir skipin hafa verið á veiðum við Snæfellsnes. Öllu ekið í frystingu á Vopnafirði „Það er kominn 97-98 prósenta þroski í þessi hrogn og alveg upp í hundrað prósent í sumum prufum,“ segir Gunnar. Þannig sé um að ræða gæðaafurð. Um tuttugu störf eru í kringum vinnsluna. Gunnar segir vel hafa gengið að fá fólk til vinnu enda séu störfin ekki fleiri en þetta því eingöngu sé skorið og hreinsað á Akranesi en ekki fryst. „Við erum ekki að frysta núna, þessu er ekið á Vopnafjörð í frystingu. Við erum með fólkið í fastri vinnu þar á kaupi og þá vilja menn aka þessu þangað og frysta þar,“ útskýrir Gunnar. Unnið verði úr um 12.500 tonnum af loðnu Aðspurður játar Gunnar því að andrúmsloftið í kringum þessa vinnu sé skemmtilegt. „Það er alltaf vertíðarstemning í kringum svona lagað,“ segir hann. Staðan er því upplífgandi og gleðiefni fyrir Akurnesinga, þar sem lítið hefur verið um að vera í þessum efnum síðustu árin. „Það hefur náttúrlega ekki verið loðnuvertíð í tvö ár,“ bendir Gunnar á. Hann reiknar með að vinnslan haldi áfram og að unnið verði úr um 12.500 tonnum af loðnu. Klára kvótann í hrogn og afgangurinn beint í bræðslu „Þetta snýst bara um veiði og ekkert annað. Þá höldum við bara áfram, restin fer í hrogn og restin af kvótanum verður tekin hér í það,“ segir Gunnar. Að sögn Gunnars fer vinnslan þannig fram að loðnan fer í gegnum hnífasett sem sker loðnuna. „Svo þvoum við hrognin úr henni og þau fara í gegnum ákveðið hreinsunarferli sem er töluvert langt, hrognin eru um þrjá tíma í kerfinu í hreinsun,“ segir hann. Fiskurinn sem gengur af er síðan unninn á staðnum. „Við dælum honum bara beint út í bræðslu,“ segir framleiðslustjórinn.

Share this article