Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ljúka loðnuvertíðinni með tæp átján þúsund tonn

Read Full Article →

Skip Vinnslustöðvarinnar veiddu alls tæplega 18 þúsund tonn af loðnu á vertíðinni semn nú er lokið hjá fyrirtækinu. Þetta kemur fram á vef Vinnslustöðvarinnar. Þar segir að skip fyrirtækisins hafi komið til hafnar í fyrrakvöld með restina af afla úr síðustu loðnutúrum vertíðarinnar. Þar með sé loðnuveiðum fyrirtækisins á þessari vertíð lokið. Ná að framleiða allt sem þau ætluðu Vitnað er til Sindra Viðarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs hjá Vinnslustöðinni, sem kveður vertíðina hafa gengið afar vel. „Við erum búin að veiða þau tæpu 18.000 tonn sem við höfðum til ráðstöfunar og vertíðin hefur gengið mjög vel. Við munum ná að framleiða allt sem við ætluðum, bæði í heilfrystingu og hrognum,“ segir Sindri á vsv.is Það sé sérstaklega ánægjulegt í ljósi stöðunnar á mörkuðum, þar sem hráefni til hrygnumarkaðar hafi verið af skornum skammti undanfarin ár. Næsta verkefni að styrkja markaðinn Flotinn á loðnumiðunum. Mynd/vsv.is „Það skiptir miklu máli að geta þjónustað hrygnumarkaðinn sem hefur vantað hráefni eftir mögur síðustu ár,“ segir Sindri. Jafnframt sé ánægjulegt að sjá merki um að loðna sé víða á ferðinni. „Það er jákvætt að sjá að loðnan virðist vera víða og vonandi skilar það sér í góðri hrygningu.“ Næsta verkefni sé að styrkja markaðinn sem hefur dregist saman á síðustu árum. Rætt er við Jón Atla Gunnarsson, skipstjóra á Gullberginu sem kom til hafnar í fyrrakvöld með síðasta loðnuaflann á vertíðinni. Segir hann síðasta túr vertíðarinnar hafa gengið vel þótt leitin hafi tekið tíma. Greinilega vestanganga „Við leituðum fyrst við Eyjar en náðum ekki að kasta þar. Síðan fórum við vestur undir Reykjanes og áfram á Garðskaga þar sem var eitthvað að sjá. Að lokum fengum við gott kast við Malarrif, suður af Snæfellsnesi, þar sem við tókum um 800 tonn, svo nokkur minni köst og enduðum á um 600 tonnum í gærmorgun,“ segir Jón Atli á vsv.is . Greinilegt sé að vestanganga loðnu hafi verið á ferðinni að undanförnu. Góðar horfur fyrir næstu árin „Það komu tvær göngur með Suðurlandinu og sú seinni var stærri, sem er frekar óvenjulegt. Einnig kom ganga að vestan. Það hefur verið mikið af loðnu og meira en maður hefur séð í langan tíma.“ Einnig segir Jón Atli það gefa tilefni til bjartsýni að sjá hversu mikið magn sé af loðnu á miðunum. „Það eru klárlega góðar horfur fyrir næstu þrjú til fjögur árin miðað við það sem við höfum séð.“ „Það var alveg svakalegt að sjá“ Jóni Atli segir alltaf mikla spenna í kringum loðnuveiðarnar. Stundum sé loðnan svo þétt að menn rífi mæturnar. Dæmi um slíkt hafi sést í Breiðafirði á vertíðinni. „Þar var torfan svo þétt að það var alveg svakalegt að sjá. Þetta er toppurinn á veiðunum og menn bera sig líka saman á milli skipa. Og þegar menn sjá til lands þá léttir oft aðeins á mönnum,“ segir Jón Atla Gunnarsson á vef Vinnslustöðvarinnar þar sem sjá má fleiri myndir frá vertíðinni.

Share this article