Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Loðnuvertíðinni að ljúka

Read Full Article →

Loðnuvertíðinni er að ljúka og síðustu farmarnir að berast að landi. Loðnan er við það að hrygna og mikil eftirspurn á markaði eftir verðmætunum, fullþroskuðum hrognum. Í Neskaupstað slettast loðnuhrognin ofan í hvert karið á fætur öðru. Allt að 800 kör fást úr hverjum báti og verðmæti hvers þeirra eru talin í hundruðum þúsunda. „Veður og vindar hafa verið okkur nokkuð hagstæð á þessari vertíð þannig að við verðum ekki í neinum vandræðum með að brenna inni með kvóta, það mun allt nást hjá okkur,“ segir Oddur Einarsson, yfirverkstjóri í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Skip Síldarvinnslunnar hafa lokið veiðum og landa síðustu loðnuförmunum á næstu dögum. Mikil verðmæti eru unnin í uppsjávarvinnslum landsins og fullþroskuð loðnuhrogn fylla kör í þúsundatali. Vertíðinni er að ljúka og skipin að klára síðustu túrana. Loðnan lýkur göngu sinni á því að hrygna vestan við landið og að því loknu drepst hún. Því er spáð að næsta loðnuvertíð verði stór þar sem mikið mælist af ungloðnu. Loðnan er verðmætust rétt fyrir hrygningu því að þá eru hrognin fullþroskuð. Það er því til mikils að vinna í uppsjávarvinnslum landsins þessi dægrin. „Allir markaðir eru öskrandi eftir hrognum þannig að það er mikil spenna erlendis eftir þessum fallegu loðnuhrognum sem við erum að vinna hérna,“ segir Oddur. Kaupendur geri miklar gæðakröfur til hrognanna og miklu máli skipti að þau séu fullþroskuð, ef til dæmis á að nota þau í meðlætið masago með sushi-réttum. Ferlið frá því að loðnan er veidd og þangað til hún er tilbúin á diskinn er langt. „Þau fara í gegnum mikið og langt þvottaferli þar sem er verið að skilja hrognin frá fiskinum. Þetta er heilmikið ferli sem fer af stað og fer í gegnum marga lítra af sjó og eru hreinsuð margoft til að við getum fengið svona úrvalshrogn eins og við erum að vinna með í dag.“

Share this article