Ríkarður Ríkarðsson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri Landsnets og mun hann hefja störf um miðjan apríl næstkomandi. Hann verður jafnframt staðgengill forstjóra og situr í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Hann hefur starfað hjá Landsvirkjun frá árinu 2011 og var þar framkvæmdastjóri í um níu ár, þar af síðustu fimm ár sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og nýsköpunar. Hjá Landsvirkjun stýrði Ríkharður alþjóðlegum verkefnum fyrirtækisins í gegnum dótturfélagið Landsvirkjun Power. Þá hefur hann átt sæti í stjórnum fyrirtækja á borð við Farice, Laki Power, Jarðböðunum á Mývatni og situr í stjórn Samorku og Grænvangs. Sjá einnig Landsnet greiðir 2,8 milljarða í arð Þar áður var Ríkarður stjórnendaráðgjafi hjá McKinsey, forstöðumaður og ráðgjafi hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum og stjórnandi hjá bandarísku hátæknifyrirtæki í London. Hann útskrifaðist með B.Sc.-gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá University of Denver árið 2000, M.Sc.-gráðu í rafmagnsverkfræði frá Stanford University árið 2002 og lauk námi í stjórnunarfræðum við IMD Business School árið 2017. „Það er frábært að fá Ríkarð til liðs við Landsnet og mun þekking hans og reynsla nýtast afar vel við að mæta þeim fjölmörgu áskorunum sem við blasa. Styrking og áframhaldandi uppbygging flutningskerfisins er lykilatriði fyrir íslenskt samfélag og atvinnulíf til frambúðar og við verðum öll að leggjast á eitt svo það megi takast. Ráðning Ríkarðs mun styrkja okkur á þeirri vegferð og bjóðum við hann hjartanlega velkominn til Landsnets,“ segir Ragna Árnadóttir.