Formaður Samtakanna 78 gengur út frá því að lögregla rannsaki aðferðir kaþólsku kirkjunnar til að bæla samkynhneigð. Yfirvöld eigi að bregðast við þegar ásetningur um lögbrot er viðurkenndur opinberlega. Í útvarpsviðtali fyrr í vikunni sagði kanslari kaþólsku kirkjunnar frá því að kirkjan aðstoðaði fólk við að bæla niður samkynhneigð. Breytingar á hegningarlögum sem tóku gildi 2024 banna meðferðir í þeim tilgangi að breyta kynhneigð séu þær þvingaðar með nauðung, blekkingum eða hótunum. Brot á þeim lögum varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Brynhildur G. Flóvenz lögfræðingur segir óljóst hvort lögin nái yfir það sem kaþólska kirkjan býður. „Það sem gæti þá mögulega átt við í þessu tilfelli er blekkingar,“ segir Brynhildur. Í íslenskum rétti sé samkynhneigð viðurkennd og fullgild annarri kynhneigð. „Þar með, ef að það er útgangspunkturinn að kynhneigð manna sé röng eða eitthvað rangt við hana og það sé til einhver meðferð, þá er útgangspunktur laganna að það séu blekkingar að mínu mati.“ Brynhildur segir það jafnframt sitt mat að tilefni sé til rannsóknar. Það telur Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna '78, líka. Hún segir skýrt að Samtökin muni fylgja því eftir ef yfirvöld rannsaka ekki málið. „Það er blekking að segja það að fólk geti breytt kynhneigð sinni og það eru auðvitað bara hótanir að segja að þú getir ekki komist í náið samband við Jesú eða inn í himnaríki eða annað slíkt ef þú stundir aktífa samkynhneigð eins og það er orðað í þessu viðtali. Það eru hótanir,“ segir Bjarndís. „Eins og ég segi þá ber ég fullt traust til þess að yfirvöld muni bregðast við en auðvitað, verði það ekki, þá fylgjum við því fast á eftir. Við fylgjumst með þessu máli.“