Innlent | mbl | 4.3.2026 | 15:30 Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra fer fyrir frumvarpinu sem Inga Sæland lagði fyrst fram. mbl.is/Anton Brink Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Kristrún: „Hvað erum við að bauka?“ Nær helmingur segist óánægður með ríkisstjórnina Píratar leysa úr hnökrum og fá greitt á næstu vikum Telur ekkert svigrúm til að hækka bætur umfram laun Lögð yrði áhersla á ETS-kerfið í aðildarviðræðum » Fleiri tengdar fréttir Stjórn Læknafélags Íslands hvetur stjórnvöld til þess að hætta við fyrirhugaða tengingu bóta almannatrygginga, örorku- og ellilífeyris, við launavísitölu og vísitölu neysluverðs. Einnig hvetur stjórn félagsins stjórnvöld eindregið til að taka til endurskoðunar þann þátt örorkukerfisins sem snýr að hlutaörorku og þeim sem fá greiðslur frá lífeyrissjóðum vegna örorkulífeyris með framreikningi. Frétt af mbl.is Þrýstingur á verðbólgu gæti aukist Algengi örorku aukist Í ályktun sem samþykkt var á fundi stjórnar á þriðjudag segir að algengi örorku á Íslandi hafi aukist á undanförnum árum. Ný rannsókn sýni mikla fjölgun einstaklinga á örorku- og endurhæfingarlífeyri, sérstaklega meðal yngri aldurshópa og að hlutfall einstaklinga á örorku og endurhæfingarlífeyri hér á landi hafi farið úr 6,3% í 9,4% á árunum 2020 til 2024. Hlutfall Íslendinga á endurhæfingar- og örorkulífeyri sé komið í 12%. Þá segir í ályktuninni að á undanförnum árum hafi verið gerðar breytingar á örorkukerfinu sem séu líklegar til að fjölga enn þeim sem fara á endurhæfingar- og örorkulífeyri. Örorka sé nú orðin varanleg og almennt fari fólk ekki í endurmat. Þá sé kerfi sjúkra- og endurhæfingargreiðslna orðið mun opnara. Ekki þurfi lengur að hefja endurhæfingu til að eiga rétt á greiðslum. Nú nægi að vera á biðlista eftir endurhæfingu eða vera of veikur til að geta tekið þátt í henni. Áður þurfti endurhæfing að vera hafin. Frétt af mbl.is Telur ekkert svigrúm til að hækka bætur umfram laun Meiri tekjur á hlutaörorku Stjórn Læknafélagsins bendir á að árið 2022 hafi örorkutrygging með framreikningi hjá lífeyrissjóðum hækkað úr 56% í 72% en skilyrði fyrir slíkum greiðslum er venjulega að viðkomandi hafi greitt í lífeyrissjóð í a.m.k. þrjú af síðustu 4 árum, en auk þess á viðkomandi rétt á greiðslum frá TR og samanlagðar greiðslur frá TR og frá lífeyrissjóði því jafn háar og fyrri laun hjá meirihluta einstaklinga með þessi réttindi. Í ályktun sinni gagnrýnir stjórn Læknafélagsins nýtt hlutaörorkukerfi þar sem þeir sem séu á hlutaörorku fái 82% af fullum örorkubótum en í staðinn mun hærra frítekjumark eða 368 þúsund krónur. Þannig geti þeir sem eru á hlutaörorku í mörgum tilfellum fengið mun hærri tekjur í stað þess að fara aftur í fullt starf eftir veikindi. Frétt af mbl.is Ásgeir og Þórarinn hafa áhyggjur af frumvarpinu Bætur hækki meira en sem nemur almennum launahækkunum Stjórn Læknafélags Íslands telur fyrirhugaða lagasetningu, sem tengja á bætur almannatrygginga, örorku- og ellilífeyri við launavísitölu og vísitölu neysluverðs, geta leitt til þess að bætur almannatrygginga hækki á vissum tímabilum meira en sem nemur almennum launahækkunum. Lýsir stjórnin áhyggjum sínum yfir þeirri þróun og segir gögn benda til að breytingarnar geti leitt til þess að ráðstöfunartekjur einstaklings á örorku, ekki síst hlutaörorku og þeirra sem eru með örorkutryggingu í lífeyrissjóði með framreikningi, verði sambærilegar eða jafnvel hærri en tekjur einstaklings í fullri vinnu. Þróun sem framkalli ranga fjárhagslega hvata, sem gætu dregið úr vilja einstaklinga til árangursríkrar endurhæfingar og atvinnuþátttöku. „Rannsóknir sýna að þeir sem ná að snúa aftur til vinnu eftir veikindi búa almennt við betri heilsu og lífsgæði en þeir sem festast á örorku. Kerfi sem gerir það fjárhagslega jafn gott eða jafnvel hagstæðara að vera utan vinnumarkaðar vinnur því gegn markmiðum heilbrigðis- og velferðarkerfisins,“ segir í ályktuninni. Frétt af mbl.is Kristrún segir gagnrýnina byggða á misskilningi Ráðstöfunartekjur eigi alltaf að aukast við aukna vinnu Stjórn LÍ telur mikilvægt að örorkulífeyriskerfið sé þannig úr garði gert að ráðstöfunartekjur aukist alltaf við aukna vinnu. Í því felst að kerfið þarf að styðja með skýrum og markvissum hætti við endurhæfingu og endurkomu á vinnumarkað. Geri kerfið það ekki er hætta á að fleiri einstaklingar festist varanlega utan vinnumarkaðar, með neikvæðum afleiðingum fyrir heilsu þeirra, starfshæfni og sjálfbærni velferðarkerfisins til lengri tíma. Tengdar fréttir Alþingi Kristrún: „Hvað erum við að bauka?“ Nær helmingur segist óánægður með ríkisstjórnina Píratar leysa úr hnökrum og fá greitt á næstu vikum Telur ekkert svigrúm til að hækka bætur umfram laun Lögð yrði áhersla á ETS-kerfið í aðildarviðræðum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ögrandi endurkoma Megan Fox Framtíð miðjumanns United í lausu lofti „Argasta afturhald sem við höfum heyrt á þessu ári“ Ómerkir dóm Landsréttar í máli sjómanns sem lést Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Koma bara ef þeir fá læknishjálp Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Evrópa komin í ógöngur með regluverk Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Um 50.000 vottorð: Enginn læknisfræðilegur tilgangur Íbúð alelda í Grafarholti en engan sakaði RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Ögrandi endurkoma Megan Fox Framtíð miðjumanns United í lausu lofti „Argasta afturhald sem við höfum heyrt á þessu ári“ Ómerkir dóm Landsréttar í máli sjómanns sem lést Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kanna hvort eftirlitsaðilar geti deilt húsnæði Norðmaður féll í Íran Birta myndskeið frá árásinni á herskipið Evrópa komin í ógöngur með regluverk Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Evrópa komin í ógöngur með regluverk Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Um 50.000 vottorð: Enginn læknisfræðilegur tilgangur Íbúð alelda í Grafarholti en engan sakaði RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“