Innlent | mbl | 4.3.2026 | 18:30 Segir málflutning Sigríðar hallærislega pólitík Inga Sæland og Sigríður Á. Andersen tókust á í dag á þingfundi. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Felldu tillögu um að skoða aðild að ESB Hvers vegna að spyrja ekki já eða nei? Vissulega gallar við ESB en gott að komast á netið Áhyggjufullur yfir ESB-skatti Fullt tilefni til að hafa áhyggjur » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Greinilega „skiptimynt“ fyrir Evrópuumræðu „Það er of mikill órói í þessu húsi í dag“ Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kristrún: „Hvað erum við að bauka?“ Nær helmingur segist óánægður með ríkisstjórnina » Fleiri tengdar fréttir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, brást ókvæða við ræðu Sigríðar Á. Andersen, þingflokksformanns Miðflokksins, á Alþingi í dag en Sigríður hafði í ræðu sinni sagt umdeilt frumvarp Flokks fólksins vera „skiptimynt fyrir Evrópuumræðu.“ Heitar umræður hafa skapast á Alþingi í dag í kjölfar þess að frumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra, um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu var afgreitt úr velferðarnefnd í morgun. Frétt af mbl.is Greinilega „skiptimynt“ fyrir Evrópuumræðu Sögðu þingmenn stjórnarandstöðunnar margir hverjir frumvarpið illa unnið og fordæmdu vinnubrögðin. Sigríður sagði það augljóst að Flokkur fólksins hefði hreðjatak á samstarfsflokkum sínum í ríkisstjórninni. Sakar þingmenn um skyggnilýsingar Sakaði Inga þingmenn stjórnarandstöðunnar um „skyggnilýsingar.“ „Ýmist er það svo að Flokkur fólksins sé hækja og aukahjól undir vagni ríkisstjórnarinnar, einhver holufylling undir störfum ríkisstjórnarinnar. Eða Flokkur fólksins ræður öllu í ríkisstjórn og beitir einhverjum heraga og kúgar ríkisstjórnina til að gera það sem Flokki fólksins sýnist,“ sagði Inga í ræðustól og benti á að þessar túlkanir á hlutverki flokksins væru mesti misskilningur. Inga Sæland segir það ávallt hafa verið á stefnuskrá Flokks fólksins að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu og því sé ekki um pólitísk hrossakaup að ræða. „Flokkur fólksins treystir sinni þjóð til þess að axla þá ábyrgð að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu, það hefur verið stefna Flokks fólksins frá byrjun og það hefur ekkert breyst hvað það varðar. Háttvirtur þingmaður Sigríður Á. Andersen, ef hún kærði sig um að skoða það betur, hefði hún kannski sleppt því sem hún sagði hér áðan og er algjör falsfrétt og hallærisleg pólitík frá A til Ö.“ Frétt af mbl.is „Það er of mikill órói í þessu húsi í dag“ Þingmenn í eilífu þagnarbindindi Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kom að lokinni ræðu Ingu upp í ræðustól á nýjan leik og sagði skýra mynd vera að dragast fram í störfum ríkisstjórnarinnar. „Háttvirtir þingmenn Viðreisnar og Samfylkingarinnar hafa verið hér í eilífu þagnarbindindi þegar það koma mál sem augljóslega standast ekki skoðun og fá ekki þinglega meðferð.“ Sagði Guðlaugur að með núverandi ríkisstjórn væri ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur frá árunum 2009-2013 endurvakin og upprisin. „Það sama er að gerast eins og þá þegar Samfylkingin þurfti að fórna orkumálunum til þess að fá ESB-vegferðina í gegn. Núna heitir þetta launavísitala og grásleppa og eitthvað ýmislegt annað, sem menn þurfa að borga í hrossakaupunum útaf þessari ESB-þráhyggju Viðreisnar og Samfylkingar. Öllum er þetta ljóst en það sorglegasta er að virðulegur forseti láti þessu vinnubrögð viðgangast.“ https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/03/04/greinilega_skiptimynt_fyrir_evropuumraedu/ Tengdar fréttir Ísland og ESB Felldu tillögu um að skoða aðild að ESB Hvers vegna að spyrja ekki já eða nei? Vissulega gallar við ESB en gott að komast á netið Áhyggjufullur yfir ESB-skatti Fullt tilefni til að hafa áhyggjur » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Greinilega „skiptimynt“ fyrir Evrópuumræðu „Það er of mikill órói í þessu húsi í dag“ Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kristrún: „Hvað erum við að bauka?“ Nær helmingur segist óánægður með ríkisstjórnina » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lögreglan rannsakar mögulega frelsissviptingu Ísland - Svartfjallaland, staðan er 13:13 Samfylkingin hefur lagt áherslu á önnur mál Landsliðsmaðurinn meiddist Segir málflutning Sigríðar hallærislega pólitík Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kanna hvort eftirlitsaðilar geti deilt húsnæði Samfylkingin hefur lagt áherslu á önnur mál Bandarískur kafbátur sökkti skipinu Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Evrópa komin í ógöngur með regluverk Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Lögreglan rannsakar mögulega frelsissviptingu Ísland - Svartfjallaland, staðan er 13:13 Samfylkingin hefur lagt áherslu á önnur mál Landsliðsmaðurinn meiddist Segir málflutning Sigríðar hallærislega pólitík Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bandarískur kafbátur sökkti skipinu Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Umdeild próf lögð fyrir nema Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Evrópa komin í ógöngur með regluverk Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“