- What: Aircraft restoration project halted
- Impact: Historical preservation effort suspended
Innlent | mbl | 5.3.2026 | 8:00 Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Svona lítur Gunnfaxi út í dag. mbl.is/Árni Sæberg Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Félagið Vinir Gunnfaxa, sem barist hefur fyrir því að koma Douglas DC-3-vélinni Gunnfaxa af Sólheimasandi á Samgöngusafnið í Skógum, hefur ákveðið að hætta þeirri baráttu. Til stendur að endurgreiða öllum þeim sem hafa lagt verkefninu lið fjárhagslega. Frá þessu greina aðstandendur félagsins, Jón Karl Snorrason, Ólafur Eggertsson og Snorri Snorrason, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Í greininni rekja þeir sögu málsins en flak vélarinnar hefur verið nokkuð í umræðunni síðustu misseri eftir að landeigendur á Sólheimasandi festu kaup á því og færðu það út á sandinn, við hlið flaks af Douglas C-117D-vél sem nauðlenti þar á síðustu öld og er orðinn vinsæll ferðamannastaður. Frétt af mbl.is Flugstjórinn vitjar flaksins hálfri öld síðar Frétt af mbl.is Síðustu forvöð að bjarga flakinu Ekki í samræmi við reglur Landeigendur keyptu vélina af Þristavinafélaginu en Vinir Gunnfaxa segja í greininni að ákvörðun um söluna hafi ekki verið tekin í samræmi við reglur félagsins. Þeir telja að á Sólheimasandi muni vélin grotna niður með tímanum og að þar með tapist mikilvægur hlekkur í flugsögu Íslands. Síðasta haust settu þeir af stað landssöfnun til að ná vélinni af sandinum en hún skilaði ekki þeim árangri sem þeir höfðu vonast til. Flak Gunnfaxa, efst á myndinni, var komið fyrir á Sólheimasandi í sumar, rétt hjá öðru vinsælu flugvélarflaki. mbl.is/Árni Sæberg Sagðist frekar vilja að vélin eyðileggist Í síðustu viku voru Jón, Ólafur og Snorri svo boðaðir á fund landeigendafélagsins Loðmundar, sem á Gunnfaxa og flak vélarinnar. Sá fundur reyndist kornið sem fyllti mælinn og sögðu þeir sig frá verkefninu í kjölfarið. „Vinir Gunnfaxa komu á fundinn og hittu stjórnarmenn í Loðmundi og safnstjóra Skógasafns, auk formanns Þristavina, sem fór mikinn í gagnrýni sinni á Vini Gunnfaxa. Fundarefnið var að ‚varðveita vélina á Sólheimasandi‘ og setja hana þar upp á stall. Formaður Þristavina sýndi því mikinn stuðning. Enginn áhugi var á varðveislu á Skógasafni. Í lok fundar beindum við því til stjórnar Loðmundar að hún myndi ánafna Gunnfaxa Skógasafni, sem hefði verið farsæl niðurstaða þeim til handa,“ segir í greininni. „Framkvæmdastjóri Loðmundar sagði á fundinum: ‚Ég vil frekar að vélin eyðileggist á sandinum en að hún fari til ykkar (safnsins).‘“ Frétt af mbl.is Pattstaða í málinu því vélin fer hvergi Þakka stuðningin Að lokum þakka Vinir Gunnfaxa fyrir þann stuðning sem þeir hafa fengið. „En þar sem hann nægir ekki óskum við eftir að þeir sem lögðu fé inn á reikning söfnunarinnar setji sig í samband við okkur og sendi okkur reikningsupplýsingar svo við getum endurgreitt framlag þeirra ( [email protected] ). Auk þess verður undirskriftalistum um vilyrði fyrir stuðningi eytt og félagið í framhaldi lagt niður. Nú er það á ábyrgð þeirra á Sólheimasandi að varðveita þessa merku flugvél.“ Nánar má lesa um málið í aðsendum greinum í Morgunblaðinu í dag. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bandarískt olíuskip í ljósum logum á Persaflóa „Sá draumur rættist“ Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Í fjórar lúxusferðir þrátt fyrir fjárhagserfiðleika Niðurstöður birtar en hvað þýða þær? Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Bandarískur kafbátur sökkti skipinu Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Mest lesið Í gær Í vikunni Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Forsendurnar riða til falls Andlát: Haukur Guðmundsson Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Meiriháttar líkamsárás til rannsóknar Loftnetin nú endanlega á útleið Leggja til að borgin eigi byggingafélag Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Niðurstöður birtar en hvað þýða þær? Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Bandarískt olíuskip í ljósum logum á Persaflóa „Sá draumur rættist“ Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Í fjórar lúxusferðir þrátt fyrir fjárhagserfiðleika Niðurstöður birtar en hvað þýða þær? Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óþekktur kafbátur sökkti írönsku herskipi Felldu tillögu um að skoða aðild að ESB Bandarískur kafbátur sökkti skipinu Loftnetin nú endanlega á útleið Mest lesið Í gær Í vikunni Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Forsendurnar riða til falls Andlát: Haukur Guðmundsson Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Meiriháttar líkamsárás til rannsóknar Loftnetin nú endanlega á útleið Leggja til að borgin eigi byggingafélag Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Niðurstöður birtar en hvað þýða þær? Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“