Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Tölvupósturinn var ekki mistök

Read Full Article →

Innlent | mbl | 6.3.2026 | 5:57 Tölvupósturinn var ekki mistök Flak Gunnfaxa, efst á myndinni, var komið fyrir á Sólheimasandi í sumar, rétt hjá öðru vinsælu flugvélarflaki. mbl.is/Árni Sæberg Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Formaður Þristavinafélagsins segir að lýðræðislega hafi verið staðið að sölu á þristinum Gunnfaxa á síðasta ári. Hann telur að vissulega væri best að geyma vélina í hituðu skýli í stað þess að hafa hana úti undir berum himni, en treystir nýjum eigendum þó til að sjá vel um vélina. Þristavinafélagið seldi landeigendum á Sólheimasandi Douglas DC-3-vélina Gunnfaxa í fyrra og var hún í kjölfarið færð út á Sólheimasand, við hlið flaks af Douglas C-117D-vél sem nauðlenti þar á síðustu öld og er orðinn vinsæll ferðamannastaður. Hópur sem kallar sig Vini Gunnfaxa var mjög ósáttur við þessa ráðstöfun á vélinni og hefur síðustu mánuði reynt að safna fyrir nýrri vél til að koma fyrir á sandinum í stað Gunnfaxa, sem þeir vilja að verði hýst á Samgöngusafninu í Skógum. Frétt af mbl.is Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Enginn setti út á söluna Nú hafa Vinir Gunnfaxa hins vegar gefist upp á þeirri baráttu, en í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag rekja þeir sína hlið málsins. Þar halda þeir því fram að illa hafi verið staðið að upphaflegu sölunni og að boða hefði átt til aðalfundar hjá Þristavinafélaginu um málið í stað þess að upplýsa félaga um fyrirhugaða sölu í tölvupósti. Þessu er Tómas Dagur Helgason, formaður félagsins, ósammála. Tómas Dagur Helgason Mynd/Bluebird Cargo „Stjórnin fjallaði um þetta á tveimur fundum. Við ræddum möguleika þess að kalla saman aðalfund. Við erum með um 350 meðlimi skráða í félaginu, en á aðalfundi félagsins hafa mætt frá 12 og upp í 28 manns. Þess vegna töldum við það lýðræðislegra að tilkynna þetta formlega til allra félagsmanna í tölvupósti og óska eftir athugasemdum frá félagsmönnum,“ segir hann í samtali við mbl.is. Setti einhver út á söluna á sínum tíma? „Nei, það setti enginn út á hana. Ég fékk þrjú eða fjögur svör við þeim tölvupósti og það var enginn sem setti út á þetta.“ Frétt af mbl.is Síðustu forvöð að bjarga flakinu Seint í rassinn gripið Spurður hvort hann telji farsælt að vélin verði geymd úti á sandinum segist Tómas vissulega sammála því að best væri að geyma hana inni í hituðu skýli svo hún grotni ekki niður. Hugmyndin um að koma henni fyrir á Skógasafni hafi hins vegar komið upp of seint. „Við hefðum ekkert haft á móti því að Skógasafn hefði fengið vélina ef málið hefði komið upp fyrr. En þeir fara ekki af stað fyrr en eftir að búið er að selja vélina og eftir að það er meira að segja búið að flytja hana,“ segir Tómas og bætir við: „Við vorum búnir að ganga frá sölu og skrifa undir afsal og annað slíkt, þannig að við erum ekki í neinni aðstöðu til að gera eitt eða neitt. En ég treysti landeigendafélaginu alveg fyllilega til að varðveita vélina þarna á sandinum.“ Svona lítur Gunnfaxi út í dag. mbl.is/Árni Sæberg Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Aldrei gerst að dögum sé bætt við Flugmóðurskip Írana í ljósum logum Bandaríkin muni snúa sér að Kúbu Íslenska mest töff tungumál í heimi Sækja Svía á átakasvæðin Umræðan Lífeyrir fylgi launum Sögulegt fleipur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kynnir þingsályktunartillögu um ESB-málið á morgun Íslendingur í Barein: „Maður vonar að þessu fari að linna“ Beint: Hútar reiðubúnir að taka í gikkinn Sonur Khamenei „óásættanlegur“ Mest lesið Í gær Í vikunni Snjókoma og hvassviðri í kortunum Íslenska mest töff tungumál í heimi Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Leigubílalögum breytt: Fyrra kerfi aftur tekið upp Hafnarsjóður greiðir risunum 91 milljón „Eignarrétturinn er friðhelgur“ Koma ekki í ár – endurkoma ekki útilokuð Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Ráðherra vill afnema „neitunarvald“ landeigenda Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Nýjast á mbl.is » Aldrei gerst að dögum sé bætt við Flugmóðurskip Írana í ljósum logum Bandaríkin muni snúa sér að Kúbu Íslenska mest töff tungumál í heimi Sækja Svía á átakasvæðin Umræðan Lífeyrir fylgi launum Sögulegt fleipur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Eignarrétturinn er friðhelgur“ Norðmenn pikkfastir í Mið-Austurlöndum Máttu fara í húsleit hjá Lyf og heilsu „Ekki hægt að „vippa upp 90 daga neyðarbirgðum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Snjókoma og hvassviðri í kortunum Íslenska mest töff tungumál í heimi Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Leigubílalögum breytt: Fyrra kerfi aftur tekið upp Hafnarsjóður greiðir risunum 91 milljón „Eignarrétturinn er friðhelgur“ Koma ekki í ár – endurkoma ekki útilokuð Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Ráðherra vill afnema „neitunarvald“ landeigenda Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga

Share this article