Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Nærri helmingur landsmanna telur gervigreind ógna lýðræðinu

Read Full Article →

Rúmlega helmingur landsmanna, eða 52,3%, hefur áhyggjur af þróun gervigreindar og áhrifum hennar til framtíðar og nærri helmingur, eða 44%, telur að lýðræðinu standi mikil ógn af gervigreind. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Fjölmiðlanefndar og Netvís um viðhorf til gervigreindar og áhrifa hennar á samfélagið. Skýrslan byggir á niðurstöðum könnunar Maskínu. Niðurstöðurnar sýna að átta af hverjum tíu telja að gervigreind muni auka áróður erlendis frá á Íslandi. Þá hefur rúmur þriðjungur áhyggjur af auknu atvinnuleysi með tilkomu gervigreindar. Alls segjast 42% nota gervigreindarforrit að minnsta kosti vikulega. Rúmlega helmingur þeirra notar hana til að aðstoða við ritvinnslu eða textaskrif en flestir nota hana til upplýsingaleitar. Talsverður munur er á afstöðu svarenda til gervigreindar eftir aldri. Rúmur helmingur þeirra sem kominn er yfir sextugt segist bera lítið eða ekkert traust til upplýsinga sem fengnar eru frá gervigreindarforritum. Aftur á móti bera tæplega 30% svarenda á aldrinum 18 til 39 ára lítið traust til upplýsinga úr þessari átt. Rúmlega 90% þátttakenda segjast hafa séð mynd eða myndskeið sem þau töldu raunverulegt en kom í ljós að var búið til með gervigreind. Mikill meirihluti svarenda telur rétt að bregðast þurfi við þróun gervigreindar og áhrifum hennar. Þannig telja nærri 75% að áhersla verði lögð á gervigreindarlæsi á öllum skólastigum. Þá vilja rúm 90% að sett verði lög sem tryggja rétt fólks yfir eigin persónueinkennum.

Share this article