Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ísland eftirbátur í innleiðingu gervigreindarstefna

  • What: A report highlights the growing use of AI in Icelandic companies.
  • Impact: AI adoption is increasing, but Iceland lags behind Nordic countries in formal AI strategies.
Read Full Article →

Rúmlega helmingur íslenskra fyrirtækja notar gervigreind samkvæmt nýrri skýrslu frá Almannarómi. Þar kemur fram að munurinn sé mikill þegar kemur að stærð fyrirtækja en um 81% fyrirtækja með 250 starfsmenn eða fleiri nota gervigreind. Til samanburðar nota aðeins 28-29% fyrirtækja með 1-9 starfsmenn gervigreind en áhrif gervigreindar á vinnumarkaðnum eru þegar farin að birtast, sérstaklega meðal sérfræðinga og skrifstofufólks. Þrátt fyrir aukna notkun gervigreindar á íslenskum vinnumarkaði eru íslensk fyrirtæki mjög eftir á miðað við hin Norðurlöndin þegar kemur að stefnumótun. Aðeins 14% fyrirtækja á Íslandi hafa mótað sér formlega gervigreindarstefnu, miðað við 48% á Norðurlöndunum. Sjá einnig Ein dýrasta lög­manns­stofan varð upp­vís að gervi­greindar­klúðri „Ísland er í fararbroddi á Norðurlöndunum hvað varðar notkun á gervigreind en við erum mun aftar þegar kemur að stefnumótandi gervigreindaraðgerðum. Það mætti því segja að íslensk fyrirtæki séu fljótari en nágrannalönd okkar að tileinka sér nýja tækni, en ekki alltaf með skipulögðum hætti,“ segir í tilkynningu. Almannarómur segir að stærsta áhættan í notkun gervigreindar á vinnustöð sé ekki bara gagnaleki, heldur líka svokölluð skuggagervigreind, rangar stillingar og veik stjórnskipan innanhúss.

Share this article